BSRB hefur undirritað einn kjarasamning við samninganefnd hins opinbera. Samningur þessi nær til allra bæjarstarfsmanna, utan Reykjavíkur. Önnur verkföll eru skollin á, í samræmi við aðgerðaráætlun aðildarfélaga BSRB.
Viðræður munu standa yfir fram á nótt vegna annarra samninga.
Aðgerðaráætlunina má sjá hér, á vef BSRB. Samningurinn sem hefur verið undirritaður nær yfir efsta liðinn, þann grænbláa. Sá nær til um 7.500 af þeim sextán þúsund sem áttu að fara í verkfall á miðnætti.
Verkföll munu hafa áhrif á skólastarf. Þá er búið að veita starfsfólki á Landspítalanum og heilsugæslustöðvum undanþágu vegna nýju kórónuveirunnar.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, segir mörg stéttarfélög sveitarfélaga í samfloti kalla sig Bæjastarfsmannafélögin. Þau hafi samið við Samband íslenskra sveitarfélaga.
„Þetta er verulega ánægjulegur áfangi,“ segir Sonja. Samningurinn gildir til 31. mars 2023.

Verið er að semja um styttingu vinnuviku við dagvinnufólk og vaktavinnufólk og eru það stórtíðindi að mati Sonju. Þetta hafi ekki breyst hjá opinberum starfsmönnum í um fimmtíu ár.
„Þannig að við teljum þetta merkan áfanga og erum búin að stefna að þessu lengi hjá BSRB og aðildarfélögin staðið þétt að baki þessarar kröfu.“
Einnig er verið að semja um fleiri atriði eins og 30 daga orlof fyrir alla og 90 þúsund króna hækkun á kjarasamningstímabilinu.
„Það eru mörg góð atriði í þessum samningi,“ segir Sonja.
Varðandi nóttina segir hún að verið sé að vinna hörðum höndum að því að semja við borgina og segist Sonja vonast til þess að það klárist í nótt. Ekki sé mikið á milli deiluaðila.
Mun lengra sé þó á milli samningsaðila þegar komi að viðræðunum við ríkið.
Efling og hið opinbera skrifuðu undir kjarasamninga um helgina en viðræður á milli Eflingar og Reykjavíkur standa enn yfir.

Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður Kjalar, stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu og formaður BSRB-nefndar Bæjarstarfsmannafélaganna, segir að samningurinn sem var undirritaður skili sömu krónutölu og Lífskjarasamningarnir svokölluðu. Þeim hafi ekki verið raskað.
„Þetta er búið að taka sinn tíma og ýmsar uppákomur á leiðinni. Þannig að það er mikill léttir að vera búinn að þessu,“ segir Arna Jakobína. Umfangsmiklu verkfalli hafi verið afstýrt. „Þannig að þetta er örugglega mikill léttir víða um landi, að það er ekki verkfall á morgun.“
Arna Jakobína segir stóra þáttinn í þessum samningi vera styttingu vinnuvikunnar. Það hafi mikil áhersla verið lögð á það.
Nú verður farið í að kynna samninga fyrir félagsmönnum og það þarf að gerast fyrir 23. mars.
Þau félög sem hafa undirritað kjarasamninginn og aflýst verkföllum gagnvart Sambandi íslenskra sveitarfélaga eru:
Kjölur, stéttarfélag í almannaþjónustu
Sameyki, stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu
Samflot bæjarstarfsmannafélaga f.h. eftirtalinna stéttarfélaga,
Félag opinberra starfsmanna á Austarlandi
Félags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum
Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu
Starfsmannafélag Fjallabyggðar
Starfsmannafélag Fjarðabyggðar
Starfsmannafélag Húsavíkur
Starfsmannafélag Vestmannaeyja
Samstarf 6 bæjarstarfsmannafélaga f.h. eftirtalinnna stéttarfélaga,
FOSS, stéttarfélag í almannaþjónustu
Starfsmannafélag Hafnarfjarðar
Starfsmannafélag Kópavogs
Starfamannafélag Mosfellsbæjar
Starfsmannafélag Suðurnesja