Veður

All­kröpp lægð fer þvert norð­austur yfir landið

Atli Ísleifsson skrifar
Spákortið fyrir klukkan 14 eins og það lítur út núna í morgunsárið.
Spákortið fyrir klukkan 14 eins og það lítur út núna í morgunsárið. Veðurstofan

Allkröpp lægð hreyfist þvert norðaustur yfir landið í dag, en lægðinni fylgir óstöðugt loft með skúradembum eða rigningu og strekkingsvestanvindum, sér í lagi á Suðausturlandi.

Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Þar segir að þó dragi heldur úr vindi og úrkomu upp úr hádegi, en megi reikna með suðvestlægari og skúraleiðingum með kvöldinu. Hitatölur verða frekar í lægri kantinum, mest 13 stig suðaustan til.

„Næsta lægð er í farvatninu, en hún myndast úr lægðardragi, sem nálgast Hvarf, en tekur síðan stefnuna norðaustur yfir Grænlandshaf. Í fyrramálið verður farið að rigna eða súlda á suður- og vesturhluta landsins og bætir í vætuna þegar líður á daginn. Austan til helst þó þurrt að kalla og þar hlýnar heldur betur, með hita að 16 stigum þegar best lætur.

Útlitið fram yfir helgi er tvískipt: votviðrasamt á suðurhelmingnum, en þurrt að mestu og hlýtt fyrir norðan,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag: Suðvestan 10-18 m/s og rigning, hvassast NV til, en þurrt að kalla Austurlandi og Austfjörðum. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast fyrir austan.

Á fimmtudag: Suðlæg átt, 5-13 m/s og dálítil rigning eða súld, en bjart með köflum á N- og A-landi. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast NA-lands.

Á föstudag: Suðaustlæg átt, 8-15 m/s og rigning eða súld, en bjartviðrið NA-lands. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast NA til.

Á laugardag: Hæg sunnanátt og skúrir eða rigning, en yfirleitt léttskýjað NA-lands og áframhaldandi hlýindi.

Á sunnudag (hvítasunnudagur): Útlit fyrir hæga suðlæga átt, dálitlar skúrir í öllum landshlutum og kólnandi veðri.

Á mánudag (annar í hvítasunnu): Líklega hægar breytilegar áttir, milt og þurrt að kalla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×