Argentínumaðurinn Lucas Ocampos skoraði í fimmta deildarleiknum í röð þegar keppni í spænsku 1. deildinni í fótbolta hófst að nýju eftir þriggja mánaða hlé vegna kórónuveirufaraldursins.
Sevilla vann 2-0 sigur gegn Real Betis í grannaslag liðanna í kvöld, sem markar endurkomu spænska boltans. Ocampos skoraði fyrra markið úr vítaspyrnu en hann hafði skorað í fjórum leikjum í röð áður en hléið var gert í deildinni.
Lucas Ocampos has now scored in five consecutive LaLiga games:
— Squawka Football (@Squawka) June 11, 2020
vs. Espanyol
vs. Getafe
vs. Osasuna
vs. Atlético Madrid
vs. Real Betis
The last Sevilla player to do that was Álvaro Negredo in 2011. pic.twitter.com/cwCU32ROez
Ocampos var ekki hættur því hann lagði upp seinna mark Sevilla með laglegri hælspyrnu þegar Fernando skoraði á 62. mínútu. Hann var svo valinn maður leiksins í leikslok.
Sevilla styrkti þar með stöðu sína í 3. sæti og er með 50 stig, sex stigum á eftir Real Madrid en fjórum stigum á undan Real Sociedad og Getafe sem eiga leik til góða. Real Betis er í 12. sæti. Leikurinn í kvöld var sá fyrsti í 28. umferð en leiknar eru 38 umferðir í deildinni.