Ísland sannar erindi sitt Þórir Guðmundsson skrifar 19. febrúar 2020 09:30 Seta Íslendinga í Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í hálft kjörtímabil sýnir glögglega erindi Íslands á alþjóðavettvangi. Ísland var þiggjandi þróunarhjálpar þar til fyrir tæpum 30 árum og sýndi lítinn áhuga á öðrum alþjóðamálum en þeim sem vörðuðu ítrustu eigin hagsmuni. Nú er Ísland farið að gefa af sér. Fulltrúar Íslands tóku þá afstöðu að beina kastljósinu fyrst að ríkjum í ráðinu. Það útheimti hugrekki sem ber að fagna. Forseti Filippseyja hellti sér yfir Ísland þegar fulltrúar þess leiddu viðleitni til að rannsaka mannréttindabrot þar í skítuga stríðinu gegn fíkniefnum. Furstarnir í Sádi Arabíu kunna Íslendingum engar þakkir fyrir að standa fyrir umræðu um morðið á blaðamanninum Jamal Khashoggi, handtökum baráttufólks fyrir mannréttindum og bágri stöðu kvenna í landinu. Vel heppnuð barátta Íslendinga í mannréttindaráðinu minnir á glæsta framgöngu landsins á vettvangi Sameinuðu þjóðanna árið 2013 í samningaviðræðum um að koma böndum á verslun með hefðbundin smávopn. Ísland var ekki bara fyrsta ríkið til að staðfesta samninginn heldur gegndi það lykilhlutverki við að styrkja hann, einkum með því að koma inn ákvæði um kynbundið ofbeldi. Þá, eins og nú, tók Ísland forystu í máli sem alls óvíst var hvernig myndi lykta. Veikleikar Íslands á alþjóðavettvangi eru augljósir. Landið hefur litla utanríkisþjónustu, litla og óljósa hagsmuni á mörgum sviðum og lítil efni á að standa fyrir kostnaðarsömu málsvarastarfi. Skammarlega lág framlög til þróunarsamvinnu, þrátt fyrir háar þjóðartekjur á mann, bera vott um takmarkaðan áhuga stjórnvalda lengst af á að láta gott af sér leiða gagnvart öðrum þjóðum. En styrkleikarnir eru til staðar og þeir eru verulegir. „Þetta reddast“ hugarfarið getur verið varhugavert en það ýtir undir viðbragðsflýti þegar á þarf að halda. Þegar Bandaríkjamenn sögðu sig úr Mannréttindaráðinu fyrirvaralaust sumarið 2018 var leitað til Íslands um að taka sæti þeirra út kjörtímabilið, eitt og hálft ár. Ekki liðu nema þrjár vikur frá því að hugmyndin kom upp, 20. júní, þar til sjálf atkvæðagreiðslan fór fram, 13. júlí. Lítil en samhent utanríkisþjónusta sýndi hverju hún getur áorkað á stuttum tíma þegar á reynir. Framganga Íslendinga í baráttunni gegn útbreiðslu smávopna og mannréttindabrotum í löndum eins og Filippseyjum og Sádi Arabíu hefur vakið verðskuldaða athygli.AP/Bullit Marquez. Starfið í Mannréttindaráðinu og baráttan fyrir ákvæði um kynbundið ofbeldi í vopnasölusamningnum sýna hvernig Ísland getur náð árangri. Til þess þurfa fulltrúar okkar að einbeita sér að vel afmörkuðum málum þar sem landið stendur sjálft vel að vígi. Við höfum náð miklum árangri innanlands í jafnréttisbaráttunni og þó að við séum hvergi nærri því komin á leiðarenda þá erum við trúverðug alþjóðlega þegar kemur að jafnréttismálum. Dæmin sem hér hafa verið tekin skipta máli í lífi fólks. Ákvæðið um kynbundið ofbeldi gerir vopnaframleiðendum erfiðara fyrir að selja hríðskotabyssur til landa með sögu ofbeldis gegn konum. Það verndar almenna borgara, sem falla fyrir þessum vopnum í miklu meiri mæli en þeir sem beita þeim. Áherslan á Filippseyjar örvaði og styrkti baráttufólk fyrir mannréttindum í því landi. Sádi Aröbum veitti ekki af ávítum umheimsins eftir vonda sögu mannréttindabrota þrátt fyrir langa setu í ráðinu. Mikilvægasti styrkleiki Íslands er samt pólitískur stuðningur við þessa nýju afstöðu landsins á vettvangi þjóðanna. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra á hrós skilið fyrir framgöngu sína í mannréttindamálum. En hann gæti lítið gert ef ekki væri breið samstaða um þessa afstöðu á þingi. Ný stefna sem samþykkt var á Alþingi um alþjóðlega þróunarsamvinnu 2019 – 2023 byggir á grundvallarafstöðu um áherslu á mannréttindi. Þannig er starf íslenskra diplómata í Genf og New York samþætt vinnu sem miðar að því að hjálpa fátækum samfélögum til bjargálna. Enginn vafi er á að þetta nýja hlutverk sem Ísland hefur ákveðið að gegna er til þess fallið að efla álit umheimsins á landi og þjóð – og að það verður okkur til tekna á alls kyns áþreifanlegan og óáþreifanlegan hátt. En það skiptir minnstu máli. Meiru skiptir að rík þjóð, sem gekk of lengi með veggjum á alþjóðasviðinu, hefur nú sjálfstraust, getu og kjark til að vinna að mikilvægum málum. Ísland hefur sannað að það hefur erindi í samfélagi þjóðanna. Höfundur er ritstjóri fréttastofu Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Ísland í mannréttindaráði SÞ Mannréttindi Utanríkismál Þórir Guðmundsson Mest lesið Bréf til varnar Hamlet eftir Kolfinnu Nikulásdóttur Björg Steinunn Gunnarsdóttir Skoðun Stefán Einar og helfarirnar Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Fúsk við mannvirkjagerð þarf ekki að viðgangast Helga Sigrún Harðardóttir Skoðun Skattfrjáls ráðstöfun séreignarsparnaðar – fyrir alla! Anna María Jónsdóttir Skoðun Þegar barn verður fyrir kynferðisofbeldi Indíana Rós Ægisdóttir Skoðun Reykjalundur á tímamótum Sveinn Guðmundsson Skoðun Bættar samgöngur og betra samfélag í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson Skoðun Skaðabótalög – tímabærar breytingar Styrmir Gunnarsson,Sveinbjörn Claessen Skoðun Hvers vegna? Ingólfur Sverrisson Skoðun Skoðun Skoðun Enga skammsýni í skammdeginu Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Þegar barn verður fyrir kynferðisofbeldi Indíana Rós Ægisdóttir skrifar Skoðun Skattfrjáls ráðstöfun séreignarsparnaðar – fyrir alla! Anna María Jónsdóttir skrifar Skoðun Stefán Einar og helfarirnar Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Bréf til varnar Hamlet eftir Kolfinnu Nikulásdóttur Björg Steinunn Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Skaðabótalög – tímabærar breytingar Styrmir Gunnarsson,Sveinbjörn Claessen skrifar Skoðun Hvers vegna? Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Fúsk við mannvirkjagerð þarf ekki að viðgangast Helga Sigrún Harðardóttir skrifar Skoðun Reykjalundur á tímamótum Sveinn Guðmundsson skrifar Skoðun Bættar samgöngur og betra samfélag í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Áhyggjur af breytingum á eftirliti með mannvirkjagerð og faggilding Ágúst Jónsson skrifar Skoðun Snjall notandi, snjallari gervigreind Agnar Burgess skrifar Skoðun Ráð gegn óhugsandi áhættu Hafsteinn Hauksson,Reynir Smári Atlason skrifar Skoðun Forysta í sjálfbærni á bakslagstímum: Sterk gildi eru enn mikilvægari en áður Dr. Andreas Rasche skrifar Skoðun Fimm ára afmæli Batahúss Agnar Bragason skrifar Skoðun Takk! Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslandsklukkan: Markleysa frá upphafi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Um stöðu íslenskukennslu á Íslandi Kjartan Jónsson skrifar Skoðun Gasa: Löng og torfarin leið til endurreisnar Philippe Lazzarini skrifar Skoðun Pops áttu p? Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin hækkar leigu stúdenta Arent Orri J. Claessen,Viktor Pétur Finnsson skrifar Skoðun Annar í feðradegi…og ég leyfi mér að dreyma Ólafur Grétar Gunnarsson skrifar Skoðun Orkuskiptin heima og að heiman Eiríkur Hjálmarsson skrifar Skoðun Fyrir hvað stöndum við? Brynja Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun COP30, Ísland, lífsskilyrði og loftslagsvá Kamma Thordarson skrifar Skoðun Dýrkeypt vinavæðing á vakt lögreglustjórans Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Svöng Eflingarbörn Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Úr myrkri í von – Saga Grindvíkinga Bryndís Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þak yfir höfuðið er mannréttindi ekki forréttindi Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson skrifar Sjá meira
Skoðun Forysta í sjálfbærni á bakslagstímum: Sterk gildi eru enn mikilvægari en áður Dr. Andreas Rasche skrifar