Håland heldur áfram að skora Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. febrúar 2020 16:29 Håland skorar nánast í hverjum einasta leik. vísir/getty Erling Braut Håland skoraði enn einn ganginn þegar Borussia Dortmund lagði Werder Bremen að velli, 0-2, í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Þetta var tólfta mark norska framherjans í átta leikjum fyrir Dortmund. Franski miðvörðurinn Dan-Axel Zagadou kom Dortmund yfir á 52. mínútu eftir sendingu Jadons Sancho. Enski landsliðsmaðurinn hefur nú lagt upp 17 mörk í þýsku deildinni í vetur. Á 66. mínútu skoraði Håland annað mark Dortmund með föstu hægri fótar skoti eftir sendingu frá Achraf Hakimi. Dortmund er í 2. sæti deildarinnar með 45 stig, fjórum stigum á eftir toppliði Bayern München. Borussia Mönchengladbach fór illa að ráði sínu gegn Hoffenheim. Matthias Ginter kom Gladbach yfir á 11. mínútu en Lucas Ribeiro jafnaði fyrir Hoffenheim í uppbótartíma. Lokatölur 1-1. Gladbach er í 4. sæti deildarinnar með 43 stig. Köln rúllaði yfir Herthu Berlin í höfuðborginni, 0-5, og Düsseldorf vann gríðarlega mikilvægan sigur á Freiburg, 0-2.Úrslit dagsins: Werder Bremen 0-2 Dortmund Mönchengladbach 1-1 Hoffenheim Hertha Berlin 0-5 Köln Freiburg 0-2 Düsseldorf Þýski boltinn
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti