Erlent

Kóralrifið mikla hefur minnkað um helming frá 1995

Samúel Karl Ólason skrifar
Kóralrifið mikla hefur átt undir högg að sækja undanfarna áratugi.
Kóralrifið mikla hefur átt undir högg að sækja undanfarna áratugi. EPA/DAN PELED

Kóralrifið mikla hefur tapað um helmingi alls kórals síns frá árinu 1995. Skaðann má að mestu rekja til hækkandi hitastigs sjávar og veðurfarsbreytinga af mannavöldum. Vísindamenn sem komust að þessari niðurstöðu segja nauðsynlegt að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.

Vísindamennirnir komust að þeirri niðurstöðu að rifið hefði tapað álíka magni af öllum tegundum kóralla en mestur skaði átti sér stað árin 2016 og 17. Rannsóknin náði þó eingöngu til áranna 1995 til og með 2017.

Rifið varð fyrir enn einu áfallinu á þessu ári. Samkvæmt frétt Brisbane Times er því talið líklegt að ástandið sé í raun alvarlegra en fram kemur í rannsókninni. Í byrjun ársins mældist sjórinn við rifið heitari en nokkru sinni áður síðan mælingar hófust um 1900.

Sjá einnig: Kóralrifið mikla í bráðri hættu

Stærstu tegundur kóralla virðast hafa orðið hvað verst úti á undanförnum árum og hafa margir dáið vegna aflitunar. Aflitun er þegar kórall sem er undir miklu álagi rekur þörunga sem veita honum lit á brott. Þeir geta jafnað sig, lagist aðstæður þeirra, en það getur tekið áratugi.

Í frétt BBC er vísað í rannsókn frá því í fyrra þar sem því var haldið fram að elstu kórallarnir væru dauðir og því ætti rifið erfitt með að endurnýja sig. Færri kórallar sem geti fjölgað sér séu lifandi.

Í frétt Washington Post er haft eftir vísindamönnunum sem komu að rannsókninni að við norðanverðan jaðar kóralrifsins mikla hafi nýlendur kórala nánast þurrkast út. Afbrigðilegar hitabylgjur séu að leika rifið grátt og svo virðist sem að tíðni þeirra hafi aukist. Þannig hafi rifið sífellt minni tíma til að jafna sig.

Hér má sjá nokkurra ára gamla heimildarmynd ABC um aflitun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×