Skoðun

Opið bréf til sóttvarnalæknis

Guðrún Bergmann skrifar

Ég er með nokkrar spurningar til Þórólfs Guðnsonar sóttvarnarlæknis og þar sem ég geri ráð fyrir að fleiri en ég væru forvitnir að vita svörin, ákvað ég að bera þær fram í opnu bréfi. Mér finnst gæta nokkurrar þversagnar í umfjöllun um flensubólusetningar, svo mig langaði að til að fá málin á hreint.

Í síðustu viku hlustaði ég á sóttvarnarlækni í fréttum sjónvarps hvetja fólk til að láta bólusetja sig við inflúensu, en í sömu frétt sagði hann jafnframt að ekki væri vitað hvaða inflúensustofn myndi herja á landsmenn í vetur. Spurningar mínar eru því:

1) Hvernig er hægt að bólusetja fólk fyrir inflúensustofni sem enginn veit hver er?

2) Hvaða inflúensustofn er þá í bóluefninu?

3) Er alumíum eða kvikasilfur notað sem fylliefni/rotvarnarefni í þessu bóluefni?

4) Í Bandaríkjunum fá læknar greitt sérstaklega fyrir hverja bólusetningu. Er það eins hér á landi?

Og svo er það Covid

Nýlega kom svo inn á borð til mín skýrsla sem birt var 13. júlí síðastliðinn bæði á vefsíðu CDC (Center for Disease Control) í Bandaríkjunum og FDA (Federal Drug Administration) en hlekkurinn hér að neðan er frá síðarnefndu stofnuninni.

https://www.fda.gov/media/134922/download.

Á blaðsíðu 39 í þeirri skýrslu stendur orðrétt: 

Since no quantified virus isolates of the 2019-nCoV are currently available, assays designed for detection of the 2019-nCoV RNA were tested with characterized stocks of in vitro transcribed full length RNA (N gene; GenBank accession: MN908947.2) of known titer (RNA copies/µL) spiked into a diluent consisting of a suspension of human A549 cells and viral transport medium (VTM) to mimic clinical specimen.

Þótt ég sé ekki sérfræðingur í læknamáli sýnist mér að í lauslegri þýðingu myndi þetta vera: 

Þar sem enginn mælanlegur veirustofn af 2019-nCoV er fyrir hendi sem stendur, hafa mælingar til að skima eða nema 2019-nCoV RNA (RKS pólýmerasi) verið gerðar með ágiskunareiginleikum RNA í fullri lengd í tilraunaglasi....

Því er ég forvitin að vita hvort við höfum verið skimuð hér með þessum ágiskunareiginleikum RNA eða hvort hér hafi tekist að einangra 2019-nCoV veiruna? Ef það hefur ekki tekist, hvaða veiru höfum við þá verið skimuð fyrir?

Annað sem ég er forvitin um snýr að fjöldatakmörkunum. Nýlega var föðurbróðir minn jarðsettur. Í kirkjunni máttu vera fimmtíu manns, en í erfidrykkju eftir útförina máttu einungis vera tuttugu. Sami hópur og þegar hafði setið í kirkjunni gat því ekki flutt sig yfir í safnaðarheimili kirkjunnar, þrátt fyrir að það væri það stórt að vel hefði verið hægt að virða tveggja metra regluna. Á hvaða rökum eða rannsóknum eru þessar fjöldatakmarkanir byggðar?

Höfundur er rithöfundur og lífsstílsráðgjafi




Skoðun

Sjá meira


×