Innlent

Ellefu greindust með kórónu­veiruna innan­lands í gær

Atli Ísleifsson skrifar
Rúmlega 5.200 manns hafa greinst með kórónuveiruna á Íslandi frá upphafi faraldursins.
Rúmlega 5.200 manns hafa greinst með kórónuveiruna á Íslandi frá upphafi faraldursins. Vísir/Vilhelm

Ellefu greindust með kórónuveiruna innan­lands í gær. Níu af þeim sem greindust í gær voru í sóttkví, eða 82 prósent. Tveir þeirra sem greindust í gær voru utan sóttkvíar, eða 18 prósent.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á vefnum covid.is. Nú eru 55 á sjúkrahúsi vegna Covid-19, þar af fjórir á gjörgæslu. Í gær voru 57 á sjúkrahúsi og þar af fjórir á gjörgæslu.

Fjórir greindust á landamærum og er niðurstöðu mótefnamælingar er beðið í tilvikum þeirra allra.

267 manns eru nú í einangrun, samanborið við 302 í gær. Þá eru 384 í sóttkví í dag, samanborið við 563 í gær.

Þriðja bylgjan.

Af þeim ellefu sem greindust innanlands í gær greindust tíu eftir að tekin voru svokölluð einkennasýni, en einn eftir svokallaða sóttkvíar- og handahófsskimun.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 56,4 en var 61,1 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita nú 7,9, en var 9,0 í gær.

Nú hafa 5.226 manns greinst smitaðir af kórónuveiru frá upphafi faraldursins. Á síðunni segir að af þeim veikst hafa af Covid-19 eru 25 nú látnir.

Alls voru tekin 812 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 226 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun. Þá voru 131 sýni tekið við sóttkvíar- og handahófsskimun.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×