Innlent

Tíu greindust innan­lands

Atli Ísleifsson skrifar
Alls hafa rúmlega 5.200 manns greinst með kórónuveiruna á Íslandi frá upphafi faraldursins.
Alls hafa rúmlega 5.200 manns greinst með kórónuveiruna á Íslandi frá upphafi faraldursins. Vísir/Vilhelm

Tíu greindust með kórónu­veiruna innan­lands í gær. Sex af þeim voru í sóttkví við greiningu. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á vefnum covid.is þar sem fyrst mátti lesa að smitin hefðu verið þrjú. 

Jóhann K. Jóhannsson, samskiptastjóri hjá almannavarnardeild ríkislögreglustjóra, segir að bilun hafi verið í tölfræðihluta Covid.is síðunnar. Unnið sé að viðgerð. 

Fólki í einangrun á höfuðborgarsvæðinu fjölgar um sjö á milli daga en annars staðar á landinu stendur fjöldinn í stað eða fækkar. Því er stærsti hluti þeirra sem greindust í gær af höfuðborgarsvæðinu.

Af þeim tíu sem greindust voru sex í sóttkví, en fjórir ekki. Nú eru 52 á sjúkrahúsi vegna Covid-19, þar af þrír á gjörgæslu. Í gær voru 52 á sjúkrahúsi og þar af fjórir á gjörgæslu.

Ellefu greindust með smit á landamærum samkvæmt uppfærðum tölum. Greindust sjö með virk smit, beðið er eftir niðurstöðu mótefnamælingar í tilvikum tveggja og tveir voru með mótefni.

Greint var fá því í gær að fjórir hafi greinst innanlands á miðvikudaginn, ellefu á þriðjudag og sjö á mánudag og  níu á sunnudaginn.

232 manns eru nú í einangrun, samanborið við 233 í gær. Þá eru 318 í sóttkví í dag, samanborið við 348 í gær.

Af þeim tíu sem greindust innanlands í gær greindust átta eftir að tekin voru svokölluð einkennasýni og tveir greindust í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 48,5 en var 50,7 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita nú 10,6, en var 8,5 í gær.

Sé litið til einstakra landshluta má sjá að flestir eru í einangrun og í sóttkví á höfuðborgarsvæðinu. Fólki í einangrun á höfuðborgarsvæðinu fjölgar milli daga, fer úr 158 í 165. Fólki í sóttkví fer úr 232 í 217.

Nú hafa 5.251 manns greinst smitaðir af kórónuveiru frá upphafi faraldursins. Á síðunni segir að af þeim veikst hafa af Covid-19 eru 26 nú látnir.

Alls voru tekin 605 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 299 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun.

Fréttin hefur verið uppfærð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×