Innlent

Ekki séð svona atvinnuleysistölur á Íslandi áður

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, var gestur á fundi almannavarna í morgun.
Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, var gestur á fundi almannavarna í morgun. Almannavarnir

Forstjóri Vinnumálastofnunar segir um 25 þúsund manns hér á landi nú án atvinnu að hluta eða að öllu leyti. Slíkar tölur hafi ekki sést áður hér á landi. Hún segir stefna í 12,2 prósent atvinnuleysi hér á landi í desember. 

Í lok október voru um 20 þúsund atvinnulausir á Íslandi og á fimmta þúsund Pólverja án vinnu.

Unnur Sverrisdóttir var gestur á upplýsingafundi almannavarna í morgun. Þar sagði hún að atvinnuleitendur fái desemberuppbót og sömuleiðis þeir sem séu á hlutabótum ef þeir staðfesta atvinnuleit sína. Uppbótin er óskert 86 þúsund krónur en aldrei lægri en 21.700 krónur.

Fram kom á föstudag að grunnatvinnuleysisbætur hækki í 301.403 krónur um áramót og nemur heildarhækkunin 6,2 prósentum.

Unnur hvetur atvinnuleitendur til að nýta sér öll tækifæri til virkni, þar á meðal að sækja nám sem þeir hafa nú meira svigrúm til að gera án þess að skerða bætur. Unnið sé að raunfærnimati sem komi að hluta í staðinn fyrir nám, til dæmis til að meta reynslu og þekkingu erlendra starfsmanna.

Hún nefnir að afgreiðslutími á atvinnuleysisbótum eigi ekki að vera lengri en fjórar til sex vikur. Uppsagnarfrestur sé þrír mánuðir og segir Unnur að fólk eigi að geta komist hjá greiðslufalli með því að sækja um bætur tímanlega.

Unnur ræddi verkefnið Starf með styrk þar sem atvinnurekendum er veittur styrkur til að ráða atvinnuleitanda í allt að sex mánuði. Hún hvetur atvinnurekendur til að skoða þessa leið því með henni geta þeir fengið afbragðsstarfsfólk tímabundið inn. Starfsfólkið geti nýtt tímann til að sanna sig. Þetta sé þannig beggja hagur.

Bótatímabilið lengst á Íslandi

Regína Ásvaldsdóttir, sviðstjóri Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, var spurð að því á fundinum hvort þrjátíu mánaða tímabil atvinnuleysisbóta væri of stutt og hvort gera þurfi meira fyrir atvinnuleysi. Regína segir að gera þurfi meira. 

Þó að fjárhagsaðstoð í Reykjavík sé hæst á landinu séu atvinnuleysisbætur háar. Mikilvægt sé að lengja tímabil bóta í ljósi aðstæðna. Unnur segir að lengd bótatímabils sé pólitísk spurning. Það sé lengst á Íslandi af norðurlöndunum. 

Í hruninu hafi staðan verið tekin nokkrum sinnum og tímabilið lengt tímabundið. Hún ímyndar sér að það sama gerist nú dragist faraldurinn á langinn. Hún leggur áherslu á að alvarlegt sé fyrir fólk að vera án atvinnu í tólf mánuði eða lengur. 


Tengdar fréttir

Ástandið erfitt meðal atvinnulausra Pólverja á Íslandi

Pólsk kona sem er atvinnulaus hefur brugðið á það ráð að læra íslensku í atvinnuleysinu sem hún vonar að muni hjálpa sér við að fá vinnu. Rúmlega fimmti hver erlendur ríkisborgari á Íslandi er atvinnulaus og varaformaður Eflingar segir að margir kvíði jólunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×