Innlent

Fimm greindust innan­lands

Atli Ísleifsson skrifar
Tveir þeirra sem greindust í gær voru í sóttkví, en þrír ekki.
Tveir þeirra sem greindust í gær voru í sóttkví, en þrír ekki. Vísir/Vilhelm

Fimm greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Tveir þeirra sem greindust voru í sóttkví, en þrír ekki.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni covid.is. Alls eru 32 nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19 og þar af þrír á gjörgæslu. Í gær var fjöldinn 33 á sjúkrahúsi og þrír á gjörgæslu.

129 manns eru nú í einangrun, en fjöldinn var 142 í gær. Þá eru 278 í sóttkví í dag, samanborið við 293 í gær.

Fimm smit greindust á landamærum í gær – eitt virkt í seinni landamæraskimun og er niðurstöðu mótefnamælingar beðið í tilvikum fjögurra.

Þriðja bylgjan.

Af þeim fimm sem greindust í gær greindust fjórir eftir svokallaða einkennasýnatöku og einn í sóttkvíar- og handahófsskimun.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 28,4 en var 31,4 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita nú 11,2, en var 10,6 í gær.

Alls hafa 5.571 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar. Þá hafa 28 dauðsföll verið rakin til Covid-19 á Íslandi frá upphafi faraldursins.

Alls voru tekin 975 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 564 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun. Þá voru tekin 29 sýni í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×