Innlent

Á annan tug slökkvi­liðs­- og sjúkra­flutninga­manna í sótt­kví

Eiður Þór Árnason skrifar
Ef ástandið versnar er ljóst að það þarf að grípa til frekari ráðstafana til að geta haldið uppi sjúkraflutningum.
Ef ástandið versnar er ljóst að það þarf að grípa til frekari ráðstafana til að geta haldið uppi sjúkraflutningum. Vísir/vilhelm

Vel á annan tug slökkvi­liðs­- og sjúkraflutningamanna á höfuðborgarsvæðinu eru í sóttkví vegna kórónuveirunnar. Þetta staðfestir Birgir Finnsson varaslökkviliðsstjóri í samtali við Vísi.

Hluti þeirra er allur mannskapurinn sem skipaði eina vakt á tiltekinni stöð en hver vakt dreifist á fjórar slökkviliðsstöðvar. Sá átta manna hópur var sendur í sóttkví eftir að einn þeirra greindist með kórónuveirusmit.

Að sögn Birgis hefur annað fólk verið kallað út á aukavaktir í stað þeirra og ætti þetta ekki að hafa veigamikil áhrif á sjúkraflutninga eða önnur störf slökkviliðsins.

Birgir Finnsson, varaslökkviliðsstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu.Vísir/Jóhann

Birgir segist ekki vera með nákvæman fjölda á hreinu en telur að tala þeirra slökkviliðsmanna sem séu í sóttkví slagi í hátt á annan tug, allir í útkallsliði. Flestir hafi farið í sóttkví í kjölfar ferðalags erlendis eða vegna fjölskyldu. Hluti þessa hóps er þó byrjaður að snúa aftur til vinnu.

Að sögn Birgis hefur verið gripið til ráðstafanna vegna þessa og var undirbúningur byrjaður áður en þetta átti sér stað.

„Við erum búnir að skipta okkar liði enn meira upp, þannig núna erum við ekki bara á fjórum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Það eru færri saman og það gerum við svo ef upp kemur smit eða mögulegt smit þá er það minni hópur.“

Ef ástandið versnar er þó ljóst að það þurfi að grípa til frekari ráðstafana til að geta haldið uppi sjúkraflutningum.

Birgir segir mikið álag hafa verið á sjúkraflutningum að undanförnu, sérstaklega í ljósi þess að útköll þar sem grunur er um smit taki lengri tíma og þarfnast mikils viðbúnaðs.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×