Ísland best í heimi – líka í sóttvörnum Eva Hauksdóttir skrifar 23. mars 2020 14:00 „Allir þeir sem hafa komið að utan og við höfum greint með sýkingu eru íslenskir ferðamenn.“ Þetta var haft eftir sóttvarnarlækni í fjölmiðlum fyrir viku. Ekki fylgir sögunni hversu margir erlendir ferðamenn höfðu verið prófaðir. Daginn eftir lést erlendur ferðamaður af völdum veirunnar og konan hans greindist einnig með kórónu og var sett í einangrun. Samkvæmt erlendum fréttum var hinn látni 36 ára. Ekki hef ég orðið þess vör að blaðamenn spyrðu sóttvarnarlækni út í það hvort til stæði að skima fyrir veirunni hjá fleiri ferðamönnum. Ótrúverðugar fullyrðingar um smitleiðir Þrátt fyrir andlát erlenda ferðamannsins og sóttkví fjölda heilbrigðisstarfsmanna í kjölfarið, stendur sóttvarnarlæknir enn fastur á því að lítil hætta sé á smiti frá ferðamönnum, þar sem þeir umgangist Íslendinga ekki mikið. Íslendingarnir sem smituðust erlendis, hugsanlega af smituðum Ítölum og Svisslendingum, hafa þá líklega umgengist heimamenn þar á allt annan hátt en erlendir ferðamenn sem koma til Íslands? Kannski eru Ítalir vanir að hósta á ferðamenn sem þeir afgreiða á ítölskum hótelum en gæta þess aftur á móti, þegar þeir koma til Íslands, að hósta ekki í nærveru ferðaþjónustufólks og setjast ekki við hlið Íslendinga í heita pottinum? Nema Íslendinganir hafi smitast af öðrum ferðamönnum – sem smita þá bara ferðamenn en ekki heimamenn? Ekki virðast blaðamenn telja það hlutverk sitt að krefja heilbrigðisyfirvöld skýringa á því hvernig sýktum ferðamönnum takist að borða á veitingahúsum án þess að snerta piparstaukinn á borðinu eða sköft á áhöldum á hlaðborðinu, eða gista á hótelum án þess að snerta ljósarofa og handföng. Þess í stað keppast blaðamenn við að lepja gagnrýnislaust upp lítt rökstuddar fullyrðingar yfirvalda um það hversu góðum árangri Íslendingar séu að ná og muni ná í baráttunni við veiruna. Ísland best í heimi – líka í sóttvörnum. Spjallþættir sérhæfa sig í því að finna viðmælendur sem mæra „framvarðasveitina“ – sem er örugglega að vinna myrkranna á milli og allt það – en er síður en svo óskeikul og hefur ekki reynslu af því að takast á við skæðar farsóttir. Framvarðasveitin hélt því í fyrstu fram að einkennalausir væru ekki smitberar. Landlæknisembættið hvarf síðar frá þeirri hugmynd en sóttvarnarlæknir fullyrðir enn að smábörn og ferðamenn séu ólíklegir smitberar, jafnvel þótt meira en 200 manns hafi sýkst án þess að tekist hafi að rekja smitið. Sama framvarðasveit hefur haldið því fram að smithætta í flugvélum sé sáralítil, án þess að nokkur fjölmiðill hafi spurt hvernig farþegar komist hjá því að rekast utan í aðra farþega og snerta farangurshólf, sætisarma og borð, spennu á öryggibelti og fleiri fleti. Og ekki nóg með að upplýsingar séu tortryggilegar, heldur er ráðgjöfin í sumum tilvikum í meira lagi vafasöm. Lögreglumaðurinn í hópnum hvatti fólk beinlínis til að halda áfram að hittast og síðar, þegar gripið var til samkomubanns lýsti hann því yfir að banninu yrði ekki fylgt fast eftir. Barnalæknir ráðleggur fólki að hvetja unglinga til að hitta vini sína. Það mætti halda að við lifðum ekki á tímum Skype, Messenger, Facetime, Snapchat ... Blaðamenn eða hljóðnemastatíf? Engin þeirra heimskulegu fullyrðinga og hættulegu ráða sem komið hafa úr ranni framvarðasveitarinnar hafa sætt gagnrýni af hálfu fjölmiðla. Ferðamenn eru hættir að koma til Íslands svo við þurfum ekki að hafa áhyggjur af þeirri smitleið lengur en nú, þegar loksins er gripið til ráðstafana sem „kóvitarnir“ kölluðu eftir strax í lok febrúar, á enn að halda augljósustu smitleiðinni opinni. Meðan við höfum ekki fengið neinar trúverðugar skýringar á því hversvegna veiran ætti síður að loða við húð og hor smábarna en fullorðinna er ástæða til að hafa áhyggjur af leikskólum. Sú kenning að börn smiti ekki nema vera hóstandi er í hæsta máta ósannfærandi. Á sama tíma er mikilvægi handþvottar stöðugt brýnt fyrir fullorðnum enda mun snerting vera greið smitleið. Varla er hugmyndin sú að „Ísland best í heimi“ ali af sér ofursmábörn sem hafi vit á því að snerta ekki sömu fleti og krúnuveiran og halda höndunum frá andliti sínu og annarra? Í alvöru talað, kæru blaðamenn; hættið að hegða ykkur eins og hljóðnemastatíf og farið að taka alvarlega það hlutverk ykkar að veita yfirvöldum aðhald. Það var flott hjá heilbrigðisyfirvöldum að taka strax þá stefnu að skima og rekja og auðvitað á að tala um það sem vel er gert en það eru fleiri en sófasérfræðingar sem efast um að skæður smitsjúkdómur berist ekki með ferðamönnum og börnum. Það er eitthvað að þegar fjölmiðlar spyrja yfirvöld ekki út í augljósar þversagnir og ef útbreiðslan heldur áfram með sama hraða og síðustu daga, þá verður niðurstaðan ekkert víkingahúh og ókeypis peningar fyrir alla. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Eva Hauksdóttir Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Samkomubann á Íslandi Mest lesið Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson Skoðun Fullveldi í framkvæmd Eggert Sigurbergsson Skoðun Verður Flokkur fólksins að Flótta fólksins? Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia skrifar Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Gengið til friðar Ingibjörg Haraldsdóttir,Elín Oddný Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fullveldi í framkvæmd Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Verður Flokkur fólksins að Flótta fólksins? Júlíus Valsson skrifar Skoðun „Rússland hefur ráðist inn í 19 ríki“ - og samt engin ógn? Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Fæðuöryggi sem innviðamál í breyttu alþjóðakerfi Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Samstíga ríkisstjórn í sigri og þraut Kristrún Frostadóttir skrifar Skoðun Vextir á verðtryggðum lánum - ögurstund Hjalti Þórisson skrifar Skoðun Rokk í boði Ríkisins - möguleg tímaskekkja Stefán Ernir Valmundarson skrifar Skoðun Orkuskiptin sem engu máli skiptu Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Samtöl við þá sem hurfu of fljótt Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Flugvöllurinn í Reykjavík - fyrir landið allt Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Gamla fólkið okkar býr við óöryggi – kerfið okkar er að bregðast Valný Óttarsdóttir skrifar Skoðun Siðferðileg reiði er ekki staðreynd Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fiktið byrjar ekki sem sjúkdómur Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Jólagjöf ríkisstjórnarinnar Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Einfaldlega íslenskt, líka um jólin Hafliði Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Vönduð lagasetning á undanhaldi Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason skrifar Sjá meira
„
Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar
Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar
Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar