Skoðun

COVID bjargráð

Áslaug Inga Kristinsdóttir skrifar

Nú lifum við á tímum sem breytt hafa heiminum á skömmum tíma vegna veirufaraldurs og hafa nýjar aðstæður kallað á ýmsar áskoranir vegna breytinga á atvinnu-, fjölskyldu- og heimilislífi, samskiptaháttum og daglegum venjum okkar.

Margir eiga um sárt að binda og hafa aðstæður átt þátt í aukningu á kvíða, ótta og sorgarviðbrögðum. Sumir hafa fjárhagsáhyggjur og hafa jafnvel þurft að neita sér um að kaupa nauðsynjavörur líkt og matvöru. Einhverjir hafa ekki getað farið út á meðal fólks vegna lamandi kvíða, undirliggjandi sjúkdóma eða elli. Einsemd fer vaxandi. Við erum félagsverur og höfum þörf fyrir félagsskap hvors annars.

Á heimasíðu Geðhjálpar má finna ýmsar ráðleggingar sem styðja við vellíðan á þessum tímum og sömuleiðis hefur Landlæknisembættið gefið út heilræði á tímum kórónufaraldurs.

Heilsugæslan býður nú þeim einstaklingum sem finna fyrir kvíða vegna Covid-19 upp á símaviðtöl við sálfræðinga. Eins býður ráðgjafi Geðhjálpar upp á síma- og netráðgjöf sem hægt er að bóka með því að fylla út eyðublað eða með því hringja á skrifstofuna í síma 5701700. Hjálparsími Rauða Krossins er sömuleiðis opinn allan sólarhringinn með símann 1717.

Nú þegar að hraðinn hefur minnkað í samfélaginu og flest okkar verjum meiri tíma heima fyrir, höfum við fengið aukið rými til að endurskoða lífið, einfalda það og sinna athöfnum sem veita okkur ánægju eins og að lesa bækur, dansa, mála, spila á hljóðfæri eða sinna viðhaldsverkefnum á heimilinu. Það getur gert heilmikið fyrir okkur að hafa fasta punkta í deginum. Mér finnst t.d. mikilvægt að gefa sjálfri mér tíma á morgnana þar sem ég fer í sturtu, kveiki á kertum og fer með bænir, hugleiði, sinni morgunleikfimi og nýt þess að drekka tebolla og útbúa máltíð. Ég vel að takmarka fréttalestur því ég finn að hann hefur neikvæð áhrif á mína líðan. Ég hef ekki sjónvarp á heimilinu og það eru komnir mánuðir síðan ég sá ‘’óvænt’’ kvöldfréttir.

Það gerir mikið fyrir mig að fara í göngu í hverfinu. Ég er þakklát fyrir að búa í nálægð við dásamlega náttúru. Mér finnst gott að gefa sjálfri mér þá gjöf að ganga meðfram læknum í hverfinu, hlusta á niðinn, finna fyrir því hversu hreinsandi vindurinn er og hversu mikinn styrk sólin færir mér.

Það er í lagi þó að upp komi dagar þar sem maður upplifir hluti í móðu og finnast allt í lausu lofti. Þá er sérstaklega mikilvægt að veita sér sjálfsumhyggju, tala fallega til sín, gefa sér faðmlag og deila líðan sinni með öðrum.

Að lokum nokkur orð frá Sai Baba:

,,Lífið er lag, syngdu það!

Lífið er leikur, spilaðu hann!

Lífið er áskorun, mættu henni!

Lífið er draumur, fylgdu honum eftir!

Lífið er fórn, veittu hana!

Lífið er ást, njóttu þess!’’

Höfundur er stjórnarkona í Landssamtökunum Geðhjálp.




Skoðun

Skoðun

21 blár

Jón Pétur Zimsen skrifar

Sjá meira


×