Í tilefni 20 ára afmælis flokksins hefur Samfylkingin breytt rauðu kúlunni sem hefur verið einkennismerki hennar. Búið er að bæta fjórum rákum á kúluna sem Samfylkingin segir að eigi að tákna gagnsæi. Að sama skapi má mynda S, listabókstaf flokksins, með því að færa hluta kúlunnar í sundur eins og gert er í myndbandinu hér að neðan.
Í dag eigum við 20 ára afmæli. Við fögnum því með glænýju merki! pic.twitter.com/DeqBUS8H3p
— Samfylkingin (@Samfylkingin) May 5, 2020
Markmiðið með breytingu merksins er að sögn Samfylkingarinnar að færa myndrænt efni flokksis „inn í nútímann með merki sem er í senn sveigjanlegt og klassískt.“
Í tilkynningu Samfylkingarinnar vegna nýja merkisins segir að það hafi þegar verið samþykkt á sameiginlegum fundi framkvæmdarstjórnar, stjórnar og þingflokks Samfylkingar og í kjölfarið kynnt formönnum aðildarfélaga Samfylkingarinnar.
