Innlent

Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni útsendingu

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Kvöldfréttir hefjast á samtengdum rásum Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísis á slaginu 18:30.
Kvöldfréttir hefjast á samtengdum rásum Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísis á slaginu 18:30.

Fimmtíu manns mega koma saman samkvæmt tilslökunum á samkomubanni sem taka gildi á morgun. Allt að tvö hundruð mega sækja menningar- og íþróttaviðburði þar sem eins metra regla tekur gildi.

Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður fjallað um tilslakanir á samkomubanni og hvaða áhrif þær hafa á ýmsa starfsemi, til að mynda á viðburði og skólahald.

Í fréttatímanum höldum við áfram að fjalla um rannsókn á meintum mistökum og vanrækslu læknis á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Rætt verður við aðstandanda sem segir farir sínar ekki sléttar í samskiptum við lækninn og stjórn spítalans.

Þetta og margt fleira í kvöldfréttum á samtengdum rásum Stöðvar 2 og Bylgjunnar kl. 18:30.

Kvöldfréttirnar eru nú í lokaðri dagskrá en áskrifendur geta horft á þær hér á stod2.is. Einnig er hægt að hlusta á fréttirnar á Bylgjunni hér í spilaranum fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×