Innlent

Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Kvöldfréttir hefjast á samtengdum rásum Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísis á slaginu 18:30.
Kvöldfréttir hefjast á samtengdum rásum Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísis á slaginu 18:30.

Hópsmit breska afbrigðis kórónuveirunnar gæti verið í uppsiglingu hér á landi, að sögn sóttvarnalæknis. Tugir eru í sóttkví eftir að tvö innanlandssmit greindust um helgina og deild á Landspítala lokað. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Þá tökum við stöðuna á jarðskjálftahrinunni á Reykjanesi. Jarðskjálftafræðingur segir ómögulegt er að spá fyrir um lok hrinunnar en íbúar í Grindavík hafa flúið skjálftana um helgina.

Við ræðum einnig við systur lamaðrar konu, sem fær ekki þjónustu á næturnar, þrátt fyrir að vera með þjónustusamning. Systirin segir konuna logandi hrædda. 

Kvöldfréttirnar eru nú í lokaðri dagskrá en áskrifendur geta horft á þær hér á stod2.is. Einnig er hægt að hlusta á fréttirnar á Bylgjunni hér í spilaranum fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×