Ólafur: Að halda Keflavík í 67 stigum vinnur þennan leik Andri Már Eggertsson skrifar 10. mars 2021 22:42 Ólafur Jónas var ánægður með stelpurnar í kvöld. vísir/vilhelm Valur vann toppslag Dominos deildar kvenna í kvöld. Leikurinn endaði með þrettán stiga sigri Vals 80-67 og komst Keflavík aldrei yfir í leiknum. „
Þetta var risa sigur í kvöld. Ég var ánægður með varnarleikinn hjá okkur, við héldum Keflavík í 67 stigum sem er frábært miðað við það sem þær hafa verið að skora að meðaltali í leik. Við ræddum það fyrir leik að varnarleikurinn myndi ráða úrslitum í leiknum sem hann á endanum gerði," sagði Ólafur Jónas þjálfari Vals ánægður eftir leik. „Við lögðum upp með að draga úr hraða Keflavíkur og leyfa þeim ekki að keyra hratt á okkur. Við fengum þær til að spila á móti okkur á hálfum velli sem hentaði okkur vel." Valur spilaði fyrri hálfleikinn mjög vel en Keflavík svaraði því með góðum kafla þar sem þær gerðu fyrstu tíu stigin í seinni hálfleik. „Ég sagði við stelpurnar inn í klefa í hálfleik að Keflavík myndi byrja seinni hálfleikinn af krafti, þær eru bara með þannig karakter að þær myndu koma brjálaðar inn í seinni hálfleikinn. Við lögðum áherslu á að halda kúlinu þrátt fyrir áhlaup og aldrei hætta heldur halda alltaf áfram og taka eitt stopp í einu," sagði Ólafur um mótspyrnu Keflavíkur. Ólafur var ánægður með hvernig hans stelpur héldu sjó eftir áhlaup Keflavíkur og að lokum lönduðu þær sigrinum þokkalega sannfærandi 80 - 67.
Dominos-deild kvenna Valur Keflavík ÍF Mest lesið Þjálfari sem mætti Víkingi í fyrra lést í miðjum leik Fótbolti Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Handbolti Umboðsmaður hótaði leikmanni með byssu Fótbolti „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Íslenski boltinn Ronaldo kveðst vera betri en Messi: „Vil ekki vera hógvær“ Fótbolti Alfreð klæddist kvennatreyjunni á leiknum við Ísland Handbolti Hverjir eru bestu ungu strákarnir í Bónus-deildinni? Körfubolti Dagskráin í dag: Stórleikir í Meistaradeildinni Sport Söguleg byrjun OKC á tímabilinu Körfubolti Fannst Tottenham spila eins og fjórðu deildarlið gegn Chelsea Enski boltinn Fleiri fréttir Hverjir eru bestu ungu strákarnir í Bónus-deildinni? Söguleg byrjun OKC á tímabilinu Íslandsmeistararnir mæta bikarmeisturunum Skagamenn senda Kanann heim Tilþrif 5. umferðar: Jukic stal senunni Ólíkar niðurstöður hjá landsliðsmönnunum Er Tóti Túrbó ofmetinn? „Gott að við gátum verið liðið sem kláraði þetta“ Erfitt kvöld fyrir Ármann og Tindastól Tvöföld tvenna Tryggva í tæpu tapi Góður lokaleikhluti tryggði Njarðvík sigurinn Styrmir með þrettán í öruggum sigri Zamora Uppgjörið: Valur - KR | 93-100 | KR hafði betur í slag Reykjavíkurstórveldanna Diljá stórkostleg í lokin í endurkomu í Hveragerði „Einn af bestu leikmönnunum í sögu íslensks körfubolta“ Hlýtur að vera alvöru krísufundur í Valsheimilinu um helgina Besta byrjun Chicago Bulls síðan Jordan var í liðinu Blikar áfram með fullt hús stiga ÍR - Ármann 96-83 | Nýliðarnir enn í leit að fyrsta sigrinum „Bara feginn að við fundum þó leið“ Tindastóll - Stjarnan 96-95 | Ótrúlegur endir á Króknum „Við þurfum að vera betri varnarlega“ Íslenski körfuboltinn og Grindavík verðlaunuð NBA-leikmaður með krabbamein Haukur Helgi: Höfum ekki verið að spila góðan körfubolta „Getum verið fjandi góðir“ Uppgjörið: Álftanes-Njarðvík 93-92 | Heitur Haukur var hetjan á Álftanesinu Uppgjörið: Keflavík - Þór Þ. 86-82 | Þarf ekki alltaf að vera fallegt ef það virkar „Varnarleikur snýst eiginlega bara um að nenna“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 55-90 | Taplausir Grindvíkingar kjöldrógu Val Sjá meira