Julija Stoliarenku, 27 ára litháensk bardagakona, var borin út úr vigtun eftir að hún féll aftur fyrir sig af vigtinni. Samkvæmt heimildum UFC fékk Julija flog vegna mikils þyngdartaps.
„Því miður hefur bardaganum mínum verið aflýst,“ skrifaði Julia Avila, mótherji Stoliarenko á Instagram síðu sinni. “Það leið tvisvar yfir mótherja minn. Ég óska henni skjóts bata og ég bið fyrir henni.“
Ekki í fyrsta skipti sem gagnrýnisraddir heyrast.
MMA, eða blandaðar bardagalistir, hafa áður fengið harða gagnrýni fyrir þann niðurskurð sem keppendur þurfa að ganga í gegnum fyrir bardaga.
Gagnrýnin hefur meðal annars snúist að því að þar séu færri þyngdarflokkar en í til dæmis boxi, sem þýðir að keppendur þurfa að ganga í gegnum meiri niðurskurð vegna mikils muns á þyngdarflokkum.

Haraldur Dean Nelson, faðir og umboðsmaður Gunnars Nelson, hefur lengi talað gegn þessum svakalega niðurskurði.
Haraldur hefur oft velt því fyrir sér hvort einhver þurfi að deyja áður en þetta sé stoppað en þetta er ekki í fyrsta skipti sem hann hefur horft upp á öfgafullan niðurskurð.
Árið 2016 tjáði Haraldur sig um mál þar sem að bardagakonan Cris Cyborg þurfti að létta sig um 11 kíló á fjórum dögum.
Ári seinna tjáði hann sig svo aftur þegar Rússinn Khabib Nurmagomedov var fluttur á sjúkrahús eftir að hann fór illa út úr niðurskurði.
Fleiri dæmi eru um öfgafulla niðurskurði, og ef ekkert er gert í málinu er bara tímaspursmál hvenær við fáum fleiri fréttir í svipuðum dúr.
Julija Stoliarenko collapsed twice on Friday morning while attempting to make weight for her bantamweight bout against Julia Avila at #UFCVegas22
— ESPN MMA (@espnmma) March 19, 2021
The bout has been canceled due to weight-cutting issues, UFC officials told @marc_raimondi. https://t.co/TPLEC21ntp