Katrín bólusett í dag Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. maí 2021 09:05 Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er á leið í bólusetningu í Laugardalshöll í dag. Vísir/Vilhelm Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er meðal þeirra sem fær bólusetningu fyrir Covid-19 í Laugardalshöll í dag. Í þessari viku stendur til að bólusetja tólf þúsund manns á landinu með bóluefni Pfizer.
Um fimm þúsund fá fyrri sprautuna og sjö þúsund þá síðari að því er fram kemur á vef Landlæknis. Katrín segist í samtali við Morgunblaðið ekki hafa ætlað að auglýsa það í fjölmiðlum að hún væri að fara í bólusetningu en að sjálfsögðu mæti hún fyrst hún fái boð. Sóttvarnalæknir ákvað í síðustu viku að bólusetning gegn Covid-19 yrði hér eftir framkvæmd með tilviljunarkenndum hætti innan hvers forgangshóps í stað þess að boða einstaklinga eftir aldri. Það þýðir að yngra fólk sem tilheyrir ekki forgangs hópi getur átt von á því að vera boðað fyrr í bólusetningu en áður. Þetta er gert til að ná bólusetningu þvert á aldurshópa og ná þannig fyrr hjarðónæmi í samræmi við niðurstöðu Íslenskrar erfðagreiningar. Nú hafa um 140 þúsund einstaklingar fengið minnst einn skammt af bóluefni hér á landi. Er það um 48% þeirra sem áætlað er að bólusetja. Meðal valdhafa sem hafa verið bólusettir má nefna forseta Íslands, fjármálaráðherra og heilbrigðisráðherra. Þá hafa landlæknir og sóttvarnalæknir verið bólusettir.
Bólusetningar Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Elduðu úti, óðu yfir vaktstjórann og fylltu matsalinn Innlent Tálbeitan var með einkabílstjóra og gisti á Edition Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent „Ásakanir Jóns Gunnarssonar eru rangar“ Innlent Hátt í 400 kynlífsmyndböndum lekið í mögulegu samsæri Erlent Vill losna við tálma úr vegi sínum Erlent Ræddi við Pútín og varaði við stigmögnun Erlent „Ásakanir Svandísar í minn garð eru lygi frá rótum“ Innlent Segir hafa verið njósnað um son hans Innlent „Dapurlegt að stjórnmálafólk loki augunum fyrir stöðunni“ Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Tekist á um samgöngur í Norðvesturkjördæmi Hafa tilkynnt E. coli veikindin til Sjóvá Ók á sjö kindur og drap þær Ekki púað á Snorra „Ásakanir Svandísar í minn garð eru lygi frá rótum“ „Ásakanir Jóns Gunnarssonar eru rangar“ Elduðu úti, óðu yfir vaktstjórann og fylltu matsalinn Nauðsynlegt að sameinast um aðgerðir í jafnréttismálum Tálbeita á Edition og vegklæðning flettist af í Öxnadal Bein útsending: Heimsþing kvenleiðtoga Settur forstjóri skipaður forstjóri Sautján sóttu um embætti skrifstofustjóra fjármála Pallborðið: Hvaða lausnir bjóða flokkarnir? Fimm prósent segja innflytjendamálin mikilvægust Verðlaunuð fyrir að berjast gegn slúðri Tveir af fimm telja hvalveiðar veikja stöðu Íslands í alþjóðlegum viðskiptum Ósammála því að skoðanakannanir séu ekki nákvæmar Óvenju margar bilanir í götulýsingu í Kópavogbæ Tálbeitan var með einkabílstjóra og gisti á Edition Segir hafa verið njósnað um son hans Myndaveisla: Grindvíkingar komu saman ári eftir rýmingu Björguðu villtum ferðamönnum í Fljótsdal „Dapurlegt að stjórnmálafólk loki augunum fyrir stöðunni“ „Erfiðir tímar iðulega undanfari betri tíma“ „Ég skildi ekki konuna eina eftir heima í þessum látum“ Þversagnakennt hve lítið sé talað loftslagsmál Sterkar systur á Selfossi keppa á heimsmeistaramóti Nýtt myndefni: Sparkað í blóðmerar á íslenskum sveitabæ Sparkað í blóðmerar og eitt ár frá rýmingu Grindavíkur Í sjálfheldu á eigin svölum Sjá meira