Innlent

Einn greindist innan­lands

Atli Ísleifsson skrifar
33,5 prósent íbúa sextán ára og eldri teljast nú fullbólusettir, og 29,0 prósent hálfbólusettir.
33,5 prósent íbúa sextán ára og eldri teljast nú fullbólusettir, og 29,0 prósent hálfbólusettir. Vísir/Vilhelm

Einn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær og var viðkomandi í sóttkví við greiningu.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni Covid.is.

Í einangrun eru nú 45, en þeir voru 44 í gær. Í sóttkví eru 163, en voru 211 í gær. 1648 eru í skimunarsóttkví. Tveir eru á sjúkrahúsi vegna Covid-19, sami fjöldi og í gær.

Tveir greindust á landamærum í gær, þar sem einn greindist með virkt smit í fyrri landamæraskimun en hinn með mótefni.

98.882 eru nú fullbólusettir hér á landi og er bólusetning hafin hjá 85.737 til viðbótar. 33,5 prósent íbúa sextán ára og eldri teljast nú fullbólusettir, og 29,0 prósent hálfbólusettir. Þá hafa 2,2 prósent ýmist fengið Covid-19 og/eða eru með mótefni.

6.597 hafa nú greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins í febrúar á síðasta ári. Af þeim sem greinst hafa með COVID-19 á Íslandi eru þrjátíu látin.

Alls voru tekin 637 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær. Þá voru 1.276 sýni tekin á landamærunum eða í seinni landamæraskimun og 786 í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun.

Fréttin hefur verið uppfærð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×