Phoenix vann leikinn af afar miklu öryggi en lokatölur urðu 123-98. Það er stærsta tap Denver á allri leiktíðinni og ekki laust við að þjálfari liðsins, Michael Malone, og hans menn skömmuðust sín hreinlega að tapa svo illa á þessu stigi keppninnar.
„Þessi frammistaða var til skammar fyrir mig og alla mína leikmenn. Við förum út héðan niðurlútir og það með réttu. Það er ástæða fyrir því að fólkið á pöllunum kallaði „Suns í fjórum!“ og kalli eftir því að okkur verði sópað út því ef við spilum svona í Denver þá verður þetta mjög stutt sería,“ sagði Malone.
Einvígið færist nú yfir til Denver þar sem Nikola Jokic, nýútnefndur mikilvægasti leikmaður NBA-deildarinnar, og félagar þurfa að svara fyrir sig. Jokic skoraði 24 stig og tók 13 fráköst en fékk lítinn stuðning.
Chris Paul hélt áfram þar sem frá var horfið í fyrsta leik einvígisins og bætti um betur. Hann átti heilar 15 stoðsendingar án þess að tapa boltanum einu sinni, og skoraði 17 stig. Axlarmeiðsli sem trufluðu hann í einvíginu við LA Lakers virðast ekki há honum lengur. Devin Booker skoraði 18 stig og tók 10 fráköst.
Phoenix var tíu stigum yfir í hálfleik og jók muninn í 86-67 fyrir lokaleikhlutann. Eftir það var aldrei spurning hvernig færi en heimamenn slökuðu samt ekki á klónni og unnu 25 stiga sigur.
Liðin mætast næst í Denver seint á föstudagskvöld.