Tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir líkamsárásir, fíkniefnalagabrot og ofbeldi gegn maka Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 6. júlí 2021 13:00 Maðurinn var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi, hann sviptur ökuréttindum í fjögur ár og honum gert að greiða þolendum miskabætur. Vísir/Vilhelm Karlmaður var í gær dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir ítrekaðar líkamsárásir, ítrekuð fíkniefnalagabrot og brot í nánu sambandi gegn þáverandi eiginkonu sinni. Maðurinn var ákærður í sjö liðum í málinu og sakfelldur fyrir flest þau brot sem hann var ákærður fyrir.
Maðurinn var sakfelldur fyrir að hafa sunnudaginn 1. apríl 2018 veist að manneskju í lyftu á heimili sínu með þeim afleiðingum að hún hlaut fjölda andlits- og beináverka, brot á fjölda andlitsbeina, blæðingu í kinnholur auk rifbrots. Þetta kemur fram í dómi héraðsdóms. Þá var hann sakfelldur fyrir að hafa þann 21. júní 2020 veist að manni á veitingastaðnum Devitos Pizza í miðbæ Reykjavíkur. Maðurinn notaði stól til að slá til mannsins, sem bar fyrir sig annan stól til að verjast árásinni. Brotaþolanum tókst að forða sér af staðnum og hélt í útidyrahurðina svo árásarmaðurinn kæmist ekki út á eftir honum. Árásarmaðurinn reyndi ítrekað að komast út, með því að toga í hurðarhúninn og kasta í hann vatnskönnum með þeim afleiðingum að læsing og handfang hurðarinnar skemmdust, og rak ákærði enni sitt í annan mann og slegið hann með krepptum hnefa í höfuðið, þegar hann reyndi að ná til mannsins sem hafði flúið út. Ók ítrekað undir áhrifum fíkniefna Maðurinn var einnig sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot með því að hafa í júlí 2020 ekið bíl undir áhrifum fíkniefna og lyfja, það er amfetamíns, tetrahýdrókannabínóls, alprazólams, díazepams, klónazepams og nordíazepams. Þá fundust jafnframt 0,84 grömm af amfetamíni í buxum hans. Játaði hann að hafa framið öll ofangreind brot. Maðurinn var jafnframt sakfelldur fyrir að hafa aðfaranótt laugardagsins 13. júní 2020 haft í vörslum sínum 26,55 grömm af amfetamíni sem fundust í frystihólfi ísskáps á heimili hans. Hann var þá sakfelldur fyrir að hafa í júlí 2020 veist að konu í Reykjavík og ýtt henni með þeim afleiðingum að hún féll í jörðina. Í framhaldinu sparkaði maðurinn í fótlegg hennar og sló hana í andlitið með þeim afleiðingum að hún hlaut mar og bólgur í hægri fótlegg og roða yfir hægra kinnbeini. Maðurinn neitaði sök í þessum ákæruliðum. Hann var sakfelldur fyrir að hafa aftur keyrt bíl undir áhrifum lyfja og fíkniefna og var hann óhæfur til að stjórna honum. Lyfin sem mældust í blóði hans voru amfetamín, tetrahýdrókannabínól, alprazólam, díazepam, klónazepam, nordíazepam og oxýkódon. Maðurinn hafði jafnframt í vörslum sínum 32,88 grömm af amfetamíni sem fundust í farangursrými bílsins. Neitaði hann sök í þessum ákærulið. Lagðist inn á sjúkrahús í fimm daga eftir árásina Sjöunda ákæruliði var skipt í fjóra liði og var hann sakfelldur í tveimur þeirra. Hann var sakfelldur fyrir að hafa dagana 27. og 28. maí 2020 veist að þáverandi eiginkonu sinni með því að reka hné sitt í vinstri síðu hennar með þeim afleiðingum að hún hlaut áverkaloftbrjóst, mar í vinstra lunga og rifbeinsbrot á rifjum þrjú til sex á vinstri síðu og þurfti konan að leggjast inn á hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítalans í fimm daga vegna áverkana. Þá var hann sakfelldur fyrir að hafa frá sunnudagskvöldi 17. janúar 2021 til morgunsins eftir hótað þáverandi konu sinni líkamsmeiðingum, beitt hana ofbeldi með því að slá hana ítrekað víðsvegar um líkamann og í höfuðið með krepptum hnefa, stungið hana í nokkur skipti með eldhúshníf í báða upphandleggi og lamið hana með járnkylfu í líkamanna og höfuðið. Konan hlaut mar á brjósti, opið sár á hársverði, opið sár á brjóstkassa, nefbeinabrot, marga yfirborðsáverka á höfði, marga yfirborðsáverka á mjöðm og læri og marga yfirborðsáverka á framhandlegg. Hann var hins vegar sýknaður af ákæru um að hafa hótað konunni ítrekað líkamsmeiðingum, móðgað hana og smánað með ógnandi framferði og niðrandi athugasemdum í hennar garð og að hafa svipta hana frelsi sínu með því að halda henni nauðugri á heimili þeirra frá 17. janúar 2021 til 21. janúar. Auk þess að vera dæmdur í fangelsi var maðurinn sviptur ökurétti í fjögur ár. Þá er honum gert að greiða manninum sem hann veittist að í lyftunni 600 þúsund krónur í miskabætur og greiða konunni sem hann veittist að með því að hafa ýtt henni í jörðina og sparkað í hana 250 þúsund krónur í miskabætur. Honum er jafnframt gert að greiða fyrrverandi eiginkonu sinni 800 þúsund krónur í miskabætur.
Dómsmál Mest lesið Fölsuð ökuskírteini aldrei fleiri og aldrei verið eins fullkomin Innlent Ætlar að tala við Pútín um að „binda enda á blóðbaðið“ Erlent Grunaður um að fá alls konar búnað frá fyrirtæki fyrir fíkniefnarækt Innlent Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Innlent Fimm látnir eftir þyrluslys í Finnlandi Erlent Hafa náð stjórn á sinueldi í sumarhúsabyggð Innlent Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Innlent Hryðjuverkamálið gæti haft verulega þýðingu Innlent Framtíðar kvikmyndagerðarfólk í Sunnulækjarskóla á Selfossi Innlent Laugdælingur og Hvergerðingur hlutskarpastir í Pangeu Innlent Fleiri fréttir Framtíðar kvikmyndagerðarfólk í Sunnulækjarskóla á Selfossi Fölsuð ökuskírteini aldrei fleiri og aldrei verið eins fullkomin Laugdælingur og Hvergerðingur hlutskarpastir í Pangeu Fjölgun falsaðra skilríkja og úrslitakvöld Eurovision Hafa náð stjórn á sinueldi í sumarhúsabyggð Hryðjuverkamálið gæti haft verulega þýðingu Grunaður um að fá alls konar búnað frá fyrirtæki fyrir fíkniefnarækt „Það eru krakkar þarna núna sem eru bara í lífshættu” Styður tillögur að róttækum breytingum á byggingareftirliti Róttækar breytingar á byggingareftirliti og í beinni frá Basel Blöndulón fyllist sögulega snemma og staðan góð í lónum Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Svalt þokuloft ekki langt undan Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Björgunarmiðstöð byggð á Flúðum Eftirspurn á hlutabréfamarkaði mikil og blómstrandi gróður Sýknaðir af ákæru fyrir að brjótast inn í eigið hús Hvetja stjórnvöld í Ísrael til að breyta stefnu sinni tafarlaust Hefur áhyggjur af öryggi skólabarna í Laugardal Úlfar heldur fullum launum í heilt ár Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Umferðarljós við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar óvirk Óheillaskref að áfengi sé selt á vellinum Mikið viðbragð Gæslunnar vegna veikinda langt úti á hafi Tugmilljóna gjaldþrot meðhöndlarans Bein útsending: Sterkari saman - Þjóðarsjúkrahús í 25 ár Afstaða fær 600 þúsund í verðlaun frá Reykjavíkurborg Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Sjá meira