Mikil úrkoma hefur valdið gríðarlegum flóðum í Vestur-Evrópu frá því í gær. Mest tjón hefur orðið í þýsku fylkjunum Norðurrín-Vestfalía og Rínarlandi-Pfalz. Fylkin eru á landamærum Þýskalands við Belgíu, Holland og Lúxemborg, en þar hafa flóðin einnig valdið miklu tjóni.
Enn meiri úrkoma er í kortunum næstu daga og því sér ekki fyrir endan á flóðunum á svæðinu.
Í myndbandinu hér að neðan má sjá hvernig ástandið var í þýsku borginni Hagen í gær.
Þýski herinn hefur sent herdeildir á vettvang til að sinna björgunaraðgerðum í norður Þúskalandi. Minnst 850 hermenn taka þátt í aðgerðunum. Herinn hefur notað ellefu þyrlur til að bjarga fólki sem hefur flúið flóð upp á húsþök.
Þýski fréttamiðillinn Deutsche Welle hefur eftir björgunaraðilum að björgunar- og hreinsistarf gæti tekið allt að nokkrum vikum.
Laschet heimsótti Hagen í gær
Armin Laschet, forsætisráðherra Norðurrín-Vestfalíu og arftaki Angelu Merkel sem leiðtogi Kristilegra Demókrata, heimsótti bæinn Hagen í gær. Bærinn hefur farið mjög illa í flóðunum.

„Við munum standa við bakið á bæjum og þeim sem hafa orðið illa illa úti í flóðunum,“ sagði Laschet við fjölmiðla í gær.
Laschet kenndi hlýnun jarðar um flóðin. „Við munum standa frammi fyrir svona atburðum aftur og aftur, og það þýðir að við verðum að hraða loftlagsaðgerðum á evrópskum, ríkisbundnum og alþjóðlegum vettvangi,“ sagði hann.
Angela Merkel Þýskalandskanslari er í heimsókn til Bandaríkjanna en hún hefur þó lofað þýsku þjóðinni að ríkið muni hjálpa fórnarlömbum flóðanna. „Þið getið treyst á þá staðreynd að ríkið okkar, á alríkis-, svæðis- og samfélagsstigi, muni gera allt til að bjarga lífum, forðast hættu og lina þjáningu í þessum erfiðu aðstæðum,“ sagði hún.
Mesta rigning í hundrað ár
„Á sumum svæðum höfum við ekki séð aðra eins rigningu í hundrað ár,“ segir Andrea Friedrich, talsmaður þýsku veðurstofunnar, í samtali við CNN. „Sums staðar er úrkoma rúmlega tvöfalt meiri en venjulega og það hefur ollið flóðum og hruni húsa.