Mygla, viðhald og ábyrgð Skúli Helgason skrifar 25. ágúst 2021 08:01 Veruleiki okkar um allt land er að reglulega kemur upp mygla í húsnæði hins opinbera og auðvitað einkaaðila sem rekja má til rakaskemmda. Vitund um þennan vanda er góðu heilli meiri en á árum áður og þekking líka en þó er það svo að skortur er á skýrum og óyggjandi mælikvörðum um tengsl myglu og heilsufarsvanda, orsakasamhengi og úrræði. Dæmin hrannast upp af skólahúsnæði þar sem mygla hefur greinst og aðeins örfá dæmi frá liðnum mánuðum og misserum eru Kársnesskóli sem þurfti að rífa vegna umfangsmikillar myglu og Leikskólinn Austurkór í Kópavogi, Varmárskóli í Mosfellsbæ, Lundarskóli, Brekkuskóli og Oddeyrarskóli á Akureyri, Grunnskólinn og leikskólinn Tjarnarbær á Ísafirði og Grunnskólinn á Suðureyri og undanfarið hafa bæst við Grundaskóli á Akranesi, Grunnskóli Borgarbyggðar að Kleppjárnsreykjum og Nesskóli í Neskaupsstað svo nokkur dæmi séu nefnd. Fossvogsskóli Í Reykjavík hafa komið upp mál þar sem mygla hefur fundist og hefur húsnæði Fossvogsskóla verið þar efst á baugi en reyndar líka leikskólinn Kvistaborg sem staðsettur er steinsnar frá í Fossvoginum. Í Fossvogsskóla hefur verið ráðist í ýmsar viðhaldsframkvæmdir og endurbætur til að ráða niðurlögum rakavandamála samkvæmt ráðleggingum fagaðila en ekki tókst þó að komast fyrir vandann og var þá kallað eftir nýrri úttekt verkfræðistofunnar EFLU sem leiddi í ljós að þörf var á talsverðum framkvæmdum til viðbótar. Nú er verið að leggja lokahönd á aðgerðaáætlun um þær framkvæmdir sem munu hefjast í haust. Á meðan mun skóla og frístundastarf yngri barna fara fram í Fossvogi og í nýju húsnæði Hjálpræðishersins við Suðurlandsbraut. Tekin var ákvörðun um að nýta það tímabundið í nokkrar vikur meðan verið er að flytja til landsins og setja saman ný einingahús sem verða staðsett á lóð Fossvogsskóla. Þessi ákvarðanataka byggði ekki síst á samráði við foreldra í Fossvogsskóla og tekur mið af óskum þeirra um að börnin í yngstu árgöngunum geti sótt skóla í hverfinu eða nágrenni. Nokkur umræða hefur verið sérstaklega í Morgunblaðinu um könnun sem ákveðið var að ráðast í á dögunum til að kanna viðhorf foreldra til þriggja valkosta sem lágu fyrir um bráðabirgðahúsnæði 2.- 4. bekkjar. Ástæða þess að ráðist var í könnunina var að fulltrúar foreldra í skólaráði Fossvogsskóla töldu sig ekki geta tekið afstöðu til kostanna fyrir hönd foreldrahópsins í heild. Könnun var framkvæmd í gegnum Mentor, samskiptavef skóla og foreldra og var eingöngu send foreldrum barna í umræddum árgöngum og kennara og starfsfólks sem vinna munu með viðkomandi nemendum. Góð þátttaka var í könnuninni og bárust svör frá forráðamönnum 80% nemenda og 9 af hverjum 10 starfsmönnum. Rétt er að taka skýrt fram að enginn fótur er fyrir fréttum í Morgunblaðinu um að utanaðkomandi aðilar hafi haft áhrif á niðurstöðuna. Samráð við foreldra hefur ráðið miklu varðandi þær bráðabirgðaráðstafanir sem ákveðnar hafa verið á skólahaldi komandi vetrar meðan framkvæmdir fara fram við skólann. Það verður að segjast eins og er að betur hefði þurft að standa að verkferlum og upplýsingagjöf í húsnæðismálum Fossvogsskóla og er nauðsynlegt að gera bragarbót á því án tafar. Unnið hefur verið að því að bæta verkferil í málum sem tengjast myglu og rakaskemmdum og verður hann kynntur í næstu viku ef að líkum lætur. Heildarmyndin Nú gætu einhverjir spurt hvort staðan í húsnæðismálum Fossvogsskóla sé dæmigerð fyrir stöðu húsnæðismála í skólum borgarinnar. Svo er alls ekki því þó skóla og frístundastarf fari fram í um 170 stofnunum og nálægt 300 byggingum í borginni þá eru dæmin ekki mörg þar sem fundist hefur mygla eða alvarlegar rakaskemmdir. Það má þakka stórauknu fjármagni til viðhalds og endurbóta skólahúsnæðis á undanförnum 4-5 árum en á því tímabili hafa fjárveitingar til almenns viðhalds grunnskóla og leikskóla þrefaldast úr tæpum 600 milljónum árið 2016 í 2100 milljónir á þessu ári. Gerð hefur verið úttekt á ástandi skólahúsnæðis í borginni og á grundvelli hennar verður ráðist í aðgerðir til að bæta enn um betur í þessum efnum, enda metnaðarmál og hluti af nýrri menntastefnu borgarinnar að búa vel að nemendum og starfsfólki varðandi húsnæði og aðstöðu til skóla og frístundastarfs. Ábyrgð Sjálfstæðisflokksins Frambjóðendur og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa farið mikinn síðustu daga og vikur í umræðu um Fossvogsskóla og viðhaft stór orð um feril málsins og sett það í flokkspólitískt ljós. Það er athyglisvert í ljósi þess að Sjálfstæðisflokkurinn bar ábyrgð á því á sínum tíma að fjármagn til viðhalds skólahúsnæðis í borginni var skorið niður við trog. Það gerðist í beinu framhaldi af bankahruninu sem Sjálfstæðisflokkurinn bar auðvitað mesta pólitíska ábyrgð á, ásamt Framsóknarflokknum. Sami Sjálfstæðisflokkur hefur farið með stjórn fjármála í ríkiskerfinu lengur en nokkur annar flokkur og skilur eftir sig sviðna jörð þegar kemur að fjármögnun velferðarkerfisins, rekstur Landspítala er alvarlega vanfjármagnaður, rekstur hjúkrunarheimila sömuleiðis og samningar við sveitarfélögin um framlög til málefna fatlaðra hafa ítrekað verið sviknir af hálfu fjármálaráðuneytis. Loforð fjármálaráðherra um að bæta sveitarfélögunum milljarða tap vegna útgreiðslu séreignasparnaðar hefur ítrekað verið svikið og nýlegar upplýsingar um myglu og afleiðingar hennar í húsnæði Landspítalans draga fram dökka mynd af vanrækslusyndum Sjálfstæðisflokksins í fjármálaráðuneytinu. Í svari heilbrigðisráðuneytis við fyrirspurn á Alþingi kom fram að yfir 400 starfsmenn spítalans hafa leitað læknis vegna afleiðinga myglu á Landspítalanum. Kjósendur ættu að hafa þetta syndaregistur í huga þegar gengið verður til kosninga 25. september næstkomandi. Þá gefst gullið tækifæri til að gefa Sjálfstæðisflokknum frí og leggja grunn að heilbrigðara samfélagi þar sem jöfnuður, mannréttindi og velferð ráða ríkjum. Samfylkingin er tilbúin að taka þátt í nýrri ríkisstjórn með sérstakri áherslu á heilbrigðismál, loftslagsmál og breytta forgangsröðun í ríkisfjármálum. Höfundur er formaður skóla- og frístundaráðs og borgarfulltrúi Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Samfylkingin Skóla - og menntamál Alþingiskosningar 2021 Skoðun: Kosningar 2021 Mygla Mest lesið „Múslimahjörðin“ að taka yfir Ísland? Árni Þór Þórsson Skoðun Halldór 10.01.2026 Halldór Sjálfstæðisflokkurinn yfirgefur okkur Lárus Bl. Sigurðsson Skoðun Málið of stórt fyrir þjóðina Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Af hverju efast fólk enn – þegar loftslagsvísindin eru skýr? Eyþór Eðvarðsson Skoðun Þegar samhengi breytist – og orðræðan með Bogi Ragnarsson Skoðun Manst þú eftir hverfinu þínu? Pétur Marteinsson Skoðun Að elska nóg til að sleppa takinu Ingrid Kuhlman Skoðun Reykjavík má ekki bregðast eldri borgurum Gunnar Einarsson Skoðun Traust: Hinn ósýnilegi hornsteinn íslenskrar heilbrigðisþjónustu Jón Magnús Kristjánsson Skoðun Skoðun Skoðun Þegar samhengi breytist – og orðræðan með Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Íþróttaskuld Kristinn Albertsson skrifar Skoðun Traust: Hinn ósýnilegi hornsteinn íslenskrar heilbrigðisþjónustu Jón Magnús Kristjánsson skrifar Skoðun Að vera vakandi karlmaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Mýtuvaxtarverkin - inngangskúrs í loftslagsafneitun Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af hverju efast fólk enn – þegar loftslagsvísindin eru skýr? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Reykjavík má ekki bregðast eldri borgurum Gunnar Einarsson skrifar Skoðun Að elska nóg til að sleppa takinu Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Ábyrgð og aðgerðir – fyrsta ár Flokks fólksins í meirihluta borgarstjórnar Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Ný kynslóð Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Manst þú eftir hverfinu þínu? Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Málið of stórt fyrir þjóðina Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn yfirgefur okkur Lárus Bl. Sigurðsson skrifar Skoðun Bókun 35: Þegar Alþingi missir síðasta orðið Júlíus Valsson skrifar Skoðun „Múslimahjörðin“ að taka yfir Ísland? Árni Þór Þórsson skrifar Skoðun Ahhh! Þess vegna vill Trump eignast Grænland! Ágúst Kvaran skrifar Skoðun 35% aukning í millilandaflugi um Akureyrarflugvöll Ásthildur Sturludóttir skrifar Skoðun Við erum hjartað í boltanum Ásgeir Sveinsson skrifar Skoðun Áramótaheit sem endast Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vernd hvala er þjóðaröryggismál Micah Garen skrifar Skoðun Tímabært að koma böndum á gjaldskyldufrumskóginn Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Uppgjöf í barnamálum Bozena Raczkowska skrifar Skoðun Að óttast að það verði sem orðið er Helga Þórólfsdóttir skrifar Skoðun Börnin okkar eiga betra skilið en ókunnugar afleysingar Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Að nýta atvinnustefnu til að móta hagvöxt Mariana Mazzucato skrifar Skoðun Villi er allt sem þarf Birgir Liljar Soltani skrifar Skoðun Börnin borga verðið þegar kerfið bregst Svava Björg Mörk skrifar Skoðun Ómissandi innviðir – undirstaða öryggis og viðnáms samfélagsins Sólrún Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Atvinnuþátttaka eldra fólks og sjálfbærni Halldór S. Guðmundsson,Kolbeinn H. Stefánsson skrifar Skoðun Mannasættir Teitur Atlason skrifar Sjá meira
Traust: Hinn ósýnilegi hornsteinn íslenskrar heilbrigðisþjónustu Jón Magnús Kristjánsson Skoðun
Skoðun Traust: Hinn ósýnilegi hornsteinn íslenskrar heilbrigðisþjónustu Jón Magnús Kristjánsson skrifar
Skoðun Ábyrgð og aðgerðir – fyrsta ár Flokks fólksins í meirihluta borgarstjórnar Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar
Skoðun Börnin okkar eiga betra skilið en ókunnugar afleysingar Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Ómissandi innviðir – undirstaða öryggis og viðnáms samfélagsins Sólrún Kristjánsdóttir skrifar
Skoðun Atvinnuþátttaka eldra fólks og sjálfbærni Halldór S. Guðmundsson,Kolbeinn H. Stefánsson skrifar
Traust: Hinn ósýnilegi hornsteinn íslenskrar heilbrigðisþjónustu Jón Magnús Kristjánsson Skoðun