Námstefnan hófst í morgun en Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna stendur fyrir henni. Á annan tug erinda verða flutt í dag og á morgun og verður þar farið um víðan völl en brunavarnir eru til að mynda ofarlega á baugi.
Einar Bergmann Sveinsson, fagstjóri forvarnasviðs slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, fór í erindi sínu í morgun yfir mál Smiðshöfða 7 þar sem húsráðandi var sakfelldur fyrir brot á hegningarlögum vegna lélegra brunavarna.
„Þarna vorum við loksins búin að láta lögin um brunavarnir virka þannig að við séum að kæra alla leið og fara með hlutina á svolítið annan hátt en venjulega hefur verið gert,“ segir Einar.
Eigandi starfsmannaleigunnar 2findjob var í sumar dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að stefna lífi og heilsu á fjórða tug erlendra starfsmanna sinna í hættu með því að hýsa þá í hættulegu húsnæði á Smiðshöfða.
Að sögn Einars var húsnæðið ekki notað í þeim tilgangi sem þess var ætlað en húsráðandi nýtti iðnaðarhúsnæðið til gististarfsemi. „Það var fátt sem var í lagi,“ sagði Einar í erindi sínu og bætti við að brotin hafi verið mjög alvarleg.
Að mati sérfræðinga var það ekki spurning um hvort heldur hvenær það myndi kvikna í og þá væru mörg mannslíf í hættu. Ákæra var gefin út í málinu fyrr á þessu ári og var þá talin sú fyrsta sinnar tegundar.
Tvö önnur sambærileg mál hafa nú verið kærð en meðan málin eru til rannsóknar kveðst Einar ekki geta tjáð sig frekar um þau. Fram kom þó í erindi hans í morgun að annað þeirra mála væri alvarlegra en málið á Smiðshöfða og einstaklingurinn sem liggur þar undir grun eigi langan brotaferil að baki.
Ólíklegt að fólk látist í eldsvoða ef brunavarnir eru í lag
Jón Pétursson, námstefnustjóri viðburðarins, segir að erindi Einars í morgun hafi verið sláandi og sýnt fram á mikilvægi brunavarna. „Því miður þá leynast eldgildrur víða, og óleyfisíbúðir, þannig við erum bara á tifandi tímasprengju,“ segir Jón.
Síðar í dag verður til að mynda erindi um eldsvoðann á Bræðraborgarstíg í júní 2020 þar sem þrír létust og fjórir slösuðust. Verður í erindinu fjallað um aðkomu slökkviliðs að vettvangi og hvernig er hægt að fyrirbyggja viðlíka atburði í framtíðinni.
„Þessi bruni er mjög sérstakur og hann náttúrulega skók samfélagið. Við Íslendingar höfum nú búið svo vel að það hafa mjög fáir látist í eldsvoða á Íslandi í gegnum tíðina,“ segir Jón og bætir við að fjöldi dauðsfalla vegna eldsvoða séu að meðaltali um 1,8 á ári.
„Þar sem að brunavarnir eru í lagi, og fólk er allsgáð, þá er mjög ólíklegt að fólk slasist eða tapi lífi í eldsvoða,“ segir Jón.
Námsstefnan fer nú fram á Hótel Reykjavík Natura en hægt er að fylgjast með henni í beinni útsendingu hér fyrir neðan.