Hálka og hálkublettir. Þetta hafa verið skilaboðin á vef Vegagerðarinnar undanfarna daga en auk þess blasti við hin árlega óumflýjanlega tilkynning. Ófært er í Árneshrepp. Skilaboðin voru með fyrra fallinu þetta árið en oftar en ekki verður ófært á Strandir þegar nær dregur desember.
„Við erum bara glöð og kát,“ sagði Eva Sigurbjörnsdóttir, oddviti Árneshrepps og hótelstýra í Djúpavík í gær. Skilaboðin eru svipuð á vef Vegagerðarinnar í dag en þó með einni lykilbreytingu.
„Unnið er að mokstri.“
Eva útskýrir í samtali við Vísi að vegurinn inn í Árneshrepp sé mokaður á hverjum þriðjudegi af vöskum mönnum á Hólmavík. Fram yfir áramót.
Eva er hótelstýra á Hótel Djúpavík. Kristján Már Unnarsson tók hús á henni árið 2019.
Eva segir að fram að fjármálahruninu 2008 hafi íbúar í Árneshreppi fengið mokstur tvisvar í viku, vor og haust háð snjóalögum. Það hafi svo breyst en miðað sé við svokallaða G-reglu Vegagerðarinnar.
Niðurskurður í kjölfar fjármálahrunsins hafi leitt til þess að breyta átti mokstri og skera verulega niður. Loks hafi hreppurinn fengið í gegn einn mokstur í viku fram til 5. janúar.
„Við vorum búin að biðja um það lengi,“ segir Eva. Fólk vilji komast heim í hreppinn sinn yfir hátíðarnar en svo þurft að yfirgefa svæðið jafnvel á gamlársdag því ekki væri von á neinum frekari mokstri.
„Þannig að þeir fóru að moka einu sinni eftir áramót. Þannig standa málin nú!“
Eva segir hreppinn áfram berjast fyrir því að fá mokstur tvisvar í viku yfir allan veturinn, svo framarlega sem það sé gerlegt.
„En það er ekki komið neitt vilyrði fyrir því. Þeir á Hólmavík hafa ekkert heyrt um að það eigi að bæta í.“