Innlent

Aukið álag á barna­fjöl­skyldur í far­aldrinum

Eiður Þór Árnason skrifar
Heimsfaraldurinn hefur haft mikil áhrif á fjölskyldulíf landsmanna. 
Heimsfaraldurinn hefur haft mikil áhrif á fjölskyldulíf landsmanna.  Getty/Christopher Hopefitch

Fjórðungur barnafjölskyldna hefur fundið fyrir auknu álagi í kórónuveirufaraldrinum. Til samanburðar segjast 10% barnlausra svarenda hafa fundið fyrir auknu álagi.

Þetta kemur fram í bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands sem kannaði í vor hversu miklum tíma fólk varði umönnun og heimilisstörf. Töluverður munur er á svörum eftir því hvort börn eru á heimilinu.

Óháð fjölskyldusamsetningu taldi meirihlutinn álag af heimilisstörfum hafi verið svipað og fyrir faraldurinn, eða 76% kvenna og 80% karla. 15% beggja kynna taldi álagið hafa aukist.

Meiri fjarvinna virðist ekki hafa haft teljandi áhrif á það hvernig heimilisstörfum er skipt milli para þar sem 83% einstaklinga með börn og 89% einstaklinga á heimilum án barna sögðu verkaskiptinguna vera svipaða nú og áður.

Konur verji að jafnaði meiri tíma í umönnun barna

Virðist sem það hafi frekar verið breyting á verkaskiptingu á heimilum með börn en barnlausum þar sem 9% einstaklinga með börn sögðu hana vera jafnari nú en áður, á móti 6% einstaklinga á barnlausum heimilum, og 7% svarenda með börn sögðu hana ójafnari nú en áður á móti 4% barnlausra.

Samkvæmt rannsókn Hagstofunnar verja konur um tíu klukkustundum að meðaltali í umönnun barna og annarra ættingja en karlar tæpum átta klukkustundum.

„Þetta meðaltal segir þó afar takmarkaða sögu, eins og sést þegar fólk með börn á heimilinu er borið saman við fólk á barnlausum heimilum, en konur og karlar með börn á heimilinu verja 22 og 17 klukkustundum í umönnun á viku á móti ríflega 2 klukkustundum hjá fólki af báðum kynjum sem ekki er með börn,“ segir á vef Hagstofunnar.

Karlar sáttari með sitt framlag

Um 55% svarenda telja að þau geri um það bil sinn hluta og er ekki munur á því hlutfalli eftir búsetu. Ef litið er til kyns þá eru karlar umtalsvert líklegri til þess að vera sáttir við sitt framlag eða 62% á móti 49% kvenna.

Konur eru hins vegar líklegri til þess að telja sig gera meira en þeim ber því 46% kvenna segjast bera meira en sitt hluta á móti 9% karla. Þá telur næstum þriðjungur karla, eða 29%, að þeir geri minna en þeim ber að gera en aðeins 6% kvenna.

Að sögn Hagstofunnar verður að gera greinarmun á sanngirni verkaskiptingar og jöfnuði þar sem báðum aðilum geti fundist það sanngjarnt að annar aðilinn sjái alfarið um heimilið á meðan hinn sinni engum heimilisverkum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×