Ágæti rektor Háskóla Íslands og aðrir sem málið kann að varða.
„Betri háskóli – betra samfélag“ birtist öllum þeim sem opna heimasíðu Háskóla Íslands en eru þetta orð sem eiga að standa fyrir stefnu skólans 2021-2026. Ef lesið er til um framtíðarsýn HÍ26 segir:
Skólinn skapar opið og fjölbreytt umhverfi náms og rannsókna, hann er í sterku sambandi við meginstoðir samfélagsins og í víðtæku samstarfi við háskóla og þekkingarsetur um allan heim.
Með því að tryggja óskorað traust byggt á gæðum, jafnrétti og sjálfbærni á öllum sviðum getur Háskólinn rækt forystuhlutverk sitt í þekkingarsköpun fyrir samfélagið.
Og ef litið er til þess segir í leiðarljósi HÍ26, hvað varðar traust segir:
Við erum ábyrg og meðvituð um samfélagslegt mikilvægi skólans sem laðar að starfsfólk og nemendur með fjölbreyttan bakgrunn.
Í bréfi sem barst til nemenda og starfsfólks skólans í dag, 19. nóvember 2021, tilkynnti rektor skólans að staðpróf munu eiga sér stað í flestum áföngum skólans þessa önnina. Aðeins eru örfáir áfangar sem munu bjóða upp á heimapróf, nánar tiltekið 86 áfangar. Það eru 16% allra áfanga í grunnnámi HÍ þessa önnina.
Ef við höldum áfram að rýna aðeins í tölfræði þá eru 192 einstaklingar sem greindust með Covid-19 á síðasta sólarhring. 10% þeirra sem eru í einangrun núna greindust á síðasta sólarhring. Einnig varð Ísland í fyrsta skipti í gær, frá upphafi faraldursins, dökkrautt á korti Sóttvarnastofnunar Evrópu. Sem þýðir í raun að hættustigið er meira núna heldur en það var fyrir akkúrat ári síðan. Hvernig stendur þá á því að við séum aftur dottin í þann pakka að lokaúrræði okkar nemenda sé að fara með málið í fjölmiðla til vonar um að þurfa ekki að mæta í staðpróf meðan ástandið er svona. Hvernig eigum við að sýna traust til yfirvalda skólans, þar sem leiðarljósið er að vera ábyrg og meðvituð um samfélagslegt mikilvægi skólans, ef þau eru ekki ábyrgð og meðvituð sjálf? Hvernig ætlum við að láta framtíðarsýn HÍ26 rætast ef ekki er farið eftir gildum skólans? Við nemendur erum bæði sár og reið en fyrst og fremst vonsvikin.
Við hvetjum rektor og stjórnendur eindregið til þess að endurskoða ákvörðun sína um staðpróf. Árið er 2021 og að Háskóli Íslands, ríkisháskólinn okkar, vilji ekki leyfa nemendum að nýta þá tækni sem er í boði og taka prófin heima er sorglegt. Það er kominn tími til þess að HÍ sameinist okkur hinum sem erum komin í 21. öldina. Til hvers að auka streitu og kvíða nemenda? Af hverju ekki að leyfa okkur að vera á okkar griðarstað að taka prófin? Það hefur sýnt sig að nemendum líður miklu betur að hafa val um að taka próf í því umhverfi sem þeim líður best í. Höldum því áfram. Tökum ábyrgð. Gerum Háskóla Íslands að þeim skóla sem hann óskar eftir að vera. Gerum hann að betri háskóla.
Virðingafyllst – hópur nemenda á öðru ári í félagsfræði HÍ.
Dagbjört Lena Sigurðardóttir
Thelma Rún Birgisdóttir
Þórkatla Björg Ómarsdóttir
Anna Lilja Atladóttir
Arnar Gíslason
Björk Davíðsdóttir
Gréta Jónsdóttir
Margrét Anna Guðjónsdóttir
Katha Aþena Guðný Þorsteinsdóttir
Sumarliði Kristmundsson
Sólrún Sif Sigurðardóttir
Trausti Breiðfjörð Magnússon
Elínora Guðlaug Einarsdóttir
Erla Dögg Birgisdóttir
Ance Brunovska
Elísa Dögg Símonardóttir
Sunna Sigmarsdóttir
Birta Hlín Sigmarsdóttir
Valgeir Gauti Sigurlínusarson
Þórdís Ingvarsdóttir
Berghildur Björk Reynisdóttir
Sandra Ósk Viktorsdóttir
Birna Filippía Steinarsdóttir
Ágúst Páll Sunnuson
Guðni Kristinn Bergsson
Linda Ösp Dewage
Bergþóra Harpa Stefánsdóttir
Þorri Hrafn Róbertsson
Kristín Ingadóttir