Greint var frá því í síðustu viku að Héraðsdómur Reykjavíkur hefði úrskurðað manninn í gæsluvarðhald að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn er sem fyrr segir grunaður um fjölmörg blygðunarsemisbrot gegn börnum og barnaverndarlagabrot og að hafa reynt að mæla sér mót við börn í kynferðislegum tilgangi.
Í úrskurði Landsréttar má sjá að alls hefur lögregla 22 mál til rannsóknar sem tengjast manninum. Er hann grunaður um að hafa sent börnum á aldrinum ellefu til sextán ára ýmist klámfengin skilaboð og/eða myndir af kynferðislegum toga í gegnum samskiptaforritið Snapchat.
Í nokkrum málum er hann einnig grunaður um að hafa reynt að fá börnin til að hitta sig.
Í rökstuðningi lögreglu segir að maðurinn sé undir sterkum grun í málunum 22 en verið sé að afla frekari gagna frá Snapchat og brotaþolum. Það sé mat lögreglu að um sé að ræða afbrotahrinu sem nauðsynlegt sé að stoppa, brotaferill mannsins hafi verið nánast samfelldur frá því í maí á þessu ári.
Var maðurinn úrskurðaðu í gæsluvarðhald til 6. janúar næstkomandi.
Samkvæmt heimildum fréttastofu er um að ræða karlmann sem var handtekinn í sumar eftir að hafa sett sig í samband við fimm ólögráða stúlkur, viðhaft við þær kynferðislegt tal og reynt að fá þær til að hitta sig.
Eftir að manninum var sleppt úr haldi er hann grunaður um að hafa ítrekað brotið af sér með sams konar hætti. Fréttastofa greindi frá málinu í júní en þá höfðu fjölmargar tilkynningar frá foreldrum borist lögreglu vegna mannsins. Hann hefur áður komið við sögu lögreglu, bæði hér á landi og erlendis. Hann var einn af þeim sem reyndi að hitta 13 ára gamla tálbeitu í fréttaskýringaþættingum Kompás árið 2006.