Atvinnulíf

Á döfinni í fyrra: Vinnan og lífið

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Vinnan og lífið er umfjöllunarefni Atvinnulífsins á Vísi enda af nægu að taka: Alls kyns áskoranir fyrir stjórnendur og annað starfsfólk, atvinnuleit og starfsframi, nýsköpun, góðu ráðin, mannauðsmál, fyrirtækjamenning, jafnvægi heimilis og vinnu, heilsan og fleira.  Hvað ætli verði í brennidepli árið 2022?
Vinnan og lífið er umfjöllunarefni Atvinnulífsins á Vísi enda af nægu að taka: Alls kyns áskoranir fyrir stjórnendur og annað starfsfólk, atvinnuleit og starfsframi, nýsköpun, góðu ráðin, mannauðsmál, fyrirtækjamenning, jafnvægi heimilis og vinnu, heilsan og fleira.  Hvað ætli verði í brennidepli árið 2022?

Vegvísir í umfjöllun Atvinnulífsins á Vísi er eftirfarandi skilgreining: „Atvinnulíf fjallar á fjölbreyttan hátt um stjórnun, mannauðsmál, fyrirtækjamenningu, jafnvægi heimilis og vinnu og fleira.“

Atvinnulífið á Vísi fagnar nýju ári og boðar áframhaldandi fjölbreytta umfjöllun. En hér er smá upprifjun af ýmsum málefnum sem við fjölluðum um í fyrra og tengjast vinnunni okkar.

Þar ber fyrst að nefna mannauðsmálin sem eru alltaf í brennidepli í Atvinnulífinu. Þar er margt að breytast eins og mannauðsstjóri CCP fór vel yfir í viðtali.

Áhrif Covid einkenndi mjög mikið alla umfjöllun á árinu og ræddi Atvinnulífið við fjölmarga sérfræðinga

Þá var nokkuð fjallað um styttingu vinnuvikunnar á árinu þar sem sumir vilja jafnvel ganga lengra en boðað hefur verið.

Atvinnulífið leggur mikla áherslu á jafnréttismálin og fylgist vel með því sem gerist á þeim vettvangi.

Þá fjölluðum við á fjölbreyttan hátt um heilsuna og hversu mikilvægt það er að líða sem best í vinnu og einkalífi.

Jafnvægi einkalífs og vinnu skiptir líka miklu máli og þar var ekki síst forvitnilegt að heyra hvað foreldrar með ung börn á vinnumarkaði hafa að segja.

Langflest íslensk fyrirtæki eru lítil eða meðalstór en þessi fyrirtæki eru áberandi í umfjöllun Atvinnulífsins.

Reglulega talar Atvinnulífið við fólk sem er að hefja sinn rekstur.

Þá talar Atvinnulífið við fólk sem ýmist starfar eða hefur starfað í óhefðbundnum eða sérstaklega áhugaverðum störfum.

Frá því í mars 2020 hefur Atvinnulífið fjallað reglubundið um fjarvinnu. Bæði kosti og galla.

Atvinnuleysi og atvinnuleit er hluti af umfjöllun, ýmis góð ráð fengin frá sérfræðingum og hugað að andlegri líðan þeirra sem missa vinnuna eða óttast atvinnumissi í kjölfar Covid.

Þá fjallar Atvinnulífið reglulega um stöðuna í loftlagsmálum eða um önnur málefni tengd samfélagslegri ábyrgð.

Nýsköpun hefur frá fyrsta degi verið mjög áberandi í allri umfjöllun Atvinnulífsins og oftar en ekki draga viðtölin þá fram þá elju og þrautseigju sem þarf til hjá frumkvöðlum og sprotum, áður en velgengnin sýnir sig.

Síðast en ekki síst eru það góðu ráðin í Atvinnulífinu sem geta verið af alls kyns toga. Til dæmis hvernig best er að bregðast við þegar að við lendum í einhverju neyðarlegu atviki í vinnunni.


Tengdar fréttir

Fimm góð ráð til að ná markmiðunum okkar árið 2022

Við þekkjum þetta flest; um áramót lítum við yfir farinn veg, fyllumst bjartsýni og setjum okkur markmið fyrir gott og spennandi nýtt ár. Hversu margir ætli það séu til dæmis, sem eru að taka fyrsta daginn sinn í megrun í dag?

„Gæðastundirnar eru svo miklu fleiri“

Fyrr á þessu ári hætti Jóhann K. Jóhannsson í fréttamennsku, réði sig sem slökkviliðsstjóri í Fjallabyggð og fluttist með fjölskyldunni til Siglufjarðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×