Alnafna Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra fær nokkur símtöl á viku eða boðsbréf á einhverja uppákomu en allt vegna misskilnings því hún er ekki „rétta“ Katrín.
Katrín ekki forsætisráðherra býr í blokk í Lindahverfinu í Kópavogi og starfar sem sölumaður lyfja og er töluvert eldri en Katrín forsætisráðherra.
„Við erum inu alnöfnurnar á Íslandi, það er svolítið sérstakt því þetta eru ekkert óalgeng nöfn. Ég er að fá boðsbréf hingað heim, eða hún er að fá hingað boðsbréf send í allt mögulegt. Bæði að vera á Degi íslenskra tungu, koma og vera með fyrirlestur hjá háskólanum og öllu mögulegu,“ segir Katrín hlægjandi og hún bætir við.
„Kannski er ég búin að panta tíma hjá lækni og kemur svo, starfsfólkið bíður spennt eftir að sjá Katrínu Jakobsdóttir, ekki búið að lesa náttúrulega fæðingardaginn og svo er það bara ég, voða svekkelsi.“

Katrín segist hafa hitt nöfnu sínum nokkrum sinnum og það hafi alltaf farið mjög vel á með þeim. Forsætisráðherra þyki þó mjög leiðinlegt hvað nafna sín verði fyrir miklu ónæði fyrir það eitt að vera alnafna hennar.
En er Katrín orðinn þreytt á því að vera alnafna forsætisráðherra?
„Nei, nei, alls ekki, mér finnst það bara skemmtilegt og ég þekki ekkert annað en að vera Katrín Jakobsdóttir og hún ekki heldur sjálfsagt.“
Og maðurinn þinn, er hann ekki ánægður að eiga Katrínu Jakobsdóttir?
„Mjög, mjög ánægður og ég tala nú ekki um þegar fólk heldur að hann sé giftur henni,“ segir Katrín og skellihlær