Innlent

Strætó tekur vel í hug­myndir um frestun bíl­prófs

Smári Jökull Jónsson skrifar
Tillögurnar sem nefndar eru í skýrslunni eru enn á hugmyndastigi og aðeins dæmi um aðgerðir sem sveitarfélög gætu gripið til.
Tillögurnar sem nefndar eru í skýrslunni eru enn á hugmyndastigi og aðeins dæmi um aðgerðir sem sveitarfélög gætu gripið til. Vísir/Vilhelm

Flest ungmenni bíða ekki lengi með það að taka bílprófið þegar þau fá aldur til. Nú gæti sá möguleiki komið upp að hægt verði að fresta töku bílprófs um þrjú ár og fá í staðinn árskort í Strætó.

Hugmyndin er ein nokkurra sem birtast í skýrslunni Kolefnisfótspor höfuðborgarsvæðisins en sagt er frá málinu í Fréttablaðinu.

Meðal þess sem stungið er upp á er að byggja upp öflugri og jafnvel gjaldfrjálsar almenningssamgöngur, gera samkomulag við stóra vinnustaði um ívilnanir ef gerðir eru vistvænir samgöngusamningar og að fara í auglýsinga- og ímyndarherferð til að auka hlutdeild virkra samgöngumáta.

Í Fréttablaðinu er vitnað í Jón Kjartan Ágústsson, svæðisskipulagsstjóra höfuðborgarsvæðisins, sem segir að tillögurnar séu enn á hugmyndastigi og ekki eiginleg aðgerðaáætlun heldur dæmi um aðgerðir sem sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu gætu gripið til.

Guðmundur Heiðar Helgason upplýsingafulltrúi Strætó segir hugmyndina góða en að ákvörðunin sé pólitísk.Vísir/Vilhelm

Guðmundur Heiðar Helgason, upplýsingafulltrúi Strætó, segir að hugmyndin hafi ekki komið til umræðu innan veggja Strætó og sé væntanlega eitthvað sem skýrsluhöfundum hefur einfaldlega dottið í hug.

„Mér finnst þetta skemmtileg hugmynd og svo er alltaf spurning um útfærslu. Þetta þyrfti að vera pólitísk ákvörðun og það þyrfti að fylgja fjármagn til þess að greiða fyrir kortin,“ sagði Guðmundur í samtali við fréttastofu.

Svipað og prófað hefur verið áður

Þá bendir Guðmundur á að svipaðar útfærslur hafi verið prófaðar fyrir um það bil 15 árum síðan þegar háskólanemar fengu frítt strætókort.

„Árangurinn þá var ekkert sérstakur og það voru ákveðin vonbrigði hvernig það var nýtt. Það koma auðvitað fram fleiri hugmyndir í þessari skýrslu til dæmis með gjaldfrjáls bílastæði. Við teljum það eitt að hafa frítt í Strætó leysi ekki málin ef þú ert lengur að ferðast með strætó en í bíl,“ segir Guðmundur og bætir við að áhugavert sé að horfa til framtíðar hvað þetta varðar.

„Þetta er sérstaklega góð hugmynd ef maður horfir til framtíðar varðandi hugmyndir um Borgarlínu og leiðarkerfi Strætó þar sem við horfum fram á betra aðgengi og styttri ferðatíma.“

„Okkar sýn er að ef þú styttir ferðatíma og vagnar festast ekki í umferð þá þyrfti það að vera hluti af þessu, það dugir ekki til að hafa frítt.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×