Karlmaðurinn, sem er á fimmtugsaldri, var í gær úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald af Héraðsdómi Reykjavíkur. Maðurinn var handtekinn við íþróttasvæði Þróttar og Ármanns í Laugardalnum þar sem hann er sagður hafa stundað það að bera sig fyrir framan börn sem eru við æfingar.
Lögregla gat ekki fundið manninn
„Maðurinn stendur þarna við girðinguna eins og alltaf og er að kalla þær til sín. Þær vita af honum og vita að þær eiga bara að hunsa þetta og halda áfram að hlaupa, nema þegar þær koma annan hringinn er hann búinn að taka út á sér liminn,“ sagði Hildur Gunnarsdóttir, móðir stelpu sem lenti í manninum, í samtali við Reykjavík síðdegis.
Hún segir að lögregla hafi farið beint í það að leita að manninum eftir að atvikið var tilkynnt en hann fannst hvergi.
Dæmdur í gæsluvarðhald
„Ég ákvað að fara daginn eftir og athuga hvort ég myndi ekki finna manninn og gá hvort ég sjái hann við þessa iðju, sem og ég geri. Það var hringt á lögregluna og hún kemur með miklu hraði,“ sagði Hildur en maðurinn var gripinn við að bera sig og að pissa fyrir framan börn á æfingasvæðinu.
Hann var því handtekinn og dæmdur í gæsluvarðhald. Maðurinn er á skilorði eftir að hafa verið dæmdur fyrir að bera sig og brot gegn valdstjórninni.
Mikill léttir
Hildur segir það vera mikinn létti fyrir sig og dóttur sína að maðurinn gangi ekki laus.
„Ég finn það að hún er ofsalega ánægð með að hann sé kominn inn núna. En það er líka kvíði fyrir því hvað gerist eftir fjórar vikur. Ég mun ekki hætta fyrr en öll börnin í Laugardalnum eru óhult fyrir þessum manni.“