Þá verður rætt við varaseðlabankastjóra sem útilokar ekki að gripið verði til frekari aðgerða á fasteignalánamarkaði haldi ójafnvægið þar áfram.
Einnig fjöllum við um skráningu íslenska fyrirtækisins Alvotech á markað í kauphöllinni í New York en þetta er aðeins í annað sinn í sögunni sem íslenskt fyrirtæki er skráð í kauphöllina þar.
Einnig tökum við stöðuna á málum í Úkraínu og heyrum í forsvarsmanni Bíladaga á Akureyri sem hefjast í dag.