Mikil úrkoma gengur inn á norðanvert land í dag en útlit er fyrir mikla rigningu á Norður- og Austurlandi og norðan 8 til 15 metra á sekúndu. Svalt verður í veðri. Gular viðvaranir á Ströndum og Norðurlandi vestra gilda samkvæmt vef Veðurstofunnar til 21:00 og 22:00 á Norðurlandi eystra. Lítið verður um úrkomu í öðrum landshlutum og búist er við því að það verði nokkuð sólríkt á Suðurlandi, þar verður hitinn á bilinu 10 til 16 stig.
Hægari vindur verður með kvöldinu og dregur einnig úr vætu. Á morgun verður áfram rigning og svalt veður norðantil, norðvestan kaldi eða strekkingur á landinu en úrkomuákefðin verður þó minni. Bjart á köflum sunnanlands og fremur milt yfir daginn. Annað kvöld styttir upp fyrir norðan og lægir vesturlands.
Veðurspánna má sjá á vef Veðurstofunnar.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Föstudagur
Suðlæg eða breytileg átt 3-10 og víða bjartviðri. Hiti 10 til 17 stig. Skýjað og sums staðar dálítil rigning vestanlands um kvöldið.
Laugardagur
Suðlæg átt 3-8 og lítilsháttar væta, en bjart að mestu um landið norðaustanvert. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast á Norðausturlandi.
Sunnudagur
Suðvestan 5-13 og rigning með köflum, en lengst af þurrt austanlands. Hiti breytist lítið.
Mánudagur
Suðvestanátt og skúrir, en þurrt og bjart á Austurlandi. Hiti 9 til 16 stig, hlýjast fyrir austan.