Samkvæmt nýbirtum ársreikningi Bauhaus skilaði félagið hagnaði að fjárhæð 429 milljónir króna í fyrra til samanburðar við 13 milljóna króna tap árið 2020. Afkoman hefur verið nálægt núlli frá árinu 2019 en uppsafnað tap frá opnun verslunarinnar árið 2012 nemur alls 2,2 milljörðum króna.
Þá námu tekjur Bauhaus 4.463 milljónum króna á síðasta ári og jukust þær um 6,5 prósent milli ára. Mestu munar þó um liðinn „gengismunur“ sem var neikvæður um 229 milljónir árið 2020 en jákvæður um 56 milljónir í fyrra.
Fram kemur í skýrslu stjórnar að Bauhaus hafi eins og mörg fyrirtæki orðið fyrir neikvæðum áhrifum vegna heimsfaraldursins. Hins vegar hafi faraldrinum einnig fylgt jákvæð áhrif.
„Neytendur höfðu ekki eins marga möguleika til að ráðstafa tekjum sínum þar sem sumar atvinnugreinar voru lokaðar. Við nutum þess að neytendur juku útgjöld sín til endurbóta á heimilum sínum.“
Þá kemur einnig fram að félagið hafi horft upp á miklar hækkanir á hrávörum og flutningskostnaði.
„Árið 2021 kláruðum við uppsetningu á rafrænum verðmerkingum sem gerir okkur kleift að aðlagast frekar fljótt breyttum markaðsaðstæðum.“