Chelsea hafa unnið hratt og vel að ráðningu nýs þjálfara en Thomasi Tuchel var sagt upp í gærmorgun eftir 1-0 tap fyrir Dinamo Zagreb í Meistaradeild Evrópu. Chelsea hafði þá höktað töluvert í upphafi leiktíðar í ensku úrvalsdeildinni.
Það þótti ekki ásættanlegt hjá nýjum eigendum Chelsea, sem keypti félagið í júní af Roman Abramovich, og eyddu heimsmetafjárhæð í kaup á nýjum leikmönnum í sumar, yfir 260 milljónum punda.
Potter yfirgefur Brighton fyrir starfið hjá Chelsea en þar hefur hann verið við stjórnvölin frá árinu 2019. Talið er að Chelsea hafi þurft að reiða fram 16 milljónir punda til að losa Potter undan samningi sínum hjá Brighton.
Chelsea Football Club is delighted to welcome Graham Potter as our new Head Coach!
— Chelsea FC (@ChelseaFC) September 8, 2022
„Ég er afar stoltur og spenntur að starfa fyrir Chelsea, þetta frábæra félag. Ég er spenntur fyrir komandi samstarfi með eigendahópi félagsins og að hitta og vinna með spennandi leikmannahópi, með það að markmiði að þróa lið og kúltúr sem ótrúlegir stuðningsmenn okkar geta verið stoltir af,“ segir Potter á heimasíðu Chelsea.
Potter spratt fram á sjónarsviðið sem þjálfari Östersund í Svíþjóð en hann tók við liðinu árið 2011 og kom því upp um þrjár deildir, í þá efstu í Svíþjóð og vann sænska bikarinn 2017. Fór í kjölfarið með liðið í Evrópudeildina þar sem það komst upp úr riðli sínum og vann annan leik sinn við Arsenal en féll úr leik samanlagt 4-2 í 32-liða úrslitum. Hann tók í kjölfarið við Swansea í eina leiktíð áður en hann færði sig til Brighton.