Skoðun

Réttlátara samfélag með betri tækni

Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar

Það eru forréttindi að fá að vakna á hverjum degi og vinna að því að búa til réttlátara samfélag. Réttlátt samfélag verður ekki til af sjálfu sér, heldur með ásetningi og markvissri vinnu. Jafnlaunastaðallinn ÍST85:2012 hefur reynst öflugt verkfæri í baráttunni fyrir jafnrétti kynjanna. En áður en vottunin er í hendi þurfa fyrirtæki að uppfylla ýmis skilyrði.

Ný áskorun fyrir suma

Það er alveg ný áskorun fyrir mörg smærri og meðalstór fyrirtæki að í lok árs þurfa öll fyrirtæki með 25–50 í starfi að fara í jafnlaunastaðfestingu og öll með 50 eða fleiri í starfi að jafnaði yfir árið að fara í jafnlaunavottun. Oftar en ekki kemur það í hlut mannauðsstjóra að leiða vottunarferlið. Mannauðsstjórinn hefur ekki endilega reynslu af slíkum verkefnum sem eru nátengd gæðastjórnun og að vinna allt frá grunni er bæði flókið og tímafrekt.

Snjallar lausnir hjálpa

Það er mikilvægt að nota ekki gamladags aðferðir til þess að leysa ný verkefni og þess vegna hönnuðum við Justly Pay sem nokkurs konar uppsetningarforrit sem í daglegu máli er kallað wizard. Kerfið leiðir þig áfram skref fyrir skref, á traustum stoðum gæðastjórnunarferla, inn í framtíð þar sem við búum til betra samfélag með tækninni.

Sá trausti grunnur sem kerfið byggir á er gæðastjórnunarkerfið CCQ. Það er leiðandi kerfi sem er byggt á áralangri reynslu og sérfræðiþekkingu – þekkingu sem segir okkur að verkfærakista gæðastjórnunar geymir réttu tólin til að uppræta launamun kynjanna. Fagrar fyrirætlanir eru eitt, en til að ná settum markmiðum þarf raunhæfa framkvæmdaáætlun, eftirfylgni og skipuleg viðbrögð við frávikum. Þetta er einmitt gæðastjórnun í hnotskurn.

Það er eru forréttindi að fá að búa til lausnir sem hjálpa fyrirtækjum og stofnunum að byggja upp jafnlaunakerfi sem mætir kröfum jafnlaunastaðalsins. Þegar uppsetningarferlinu er lokið fá fyrirtæki og stofnanir gæðaskjöl sem mæta kröfum staðalsins, vefeyðublað til þess að taka á móti og vinna úr erindum er varða jafnlaunakerfið og úttektaráætlun sem er undirstaða þess að fá og viðhalda vottuðu jafnlaunakerfi.

Sjálfbærni er markmiðið

Það er ákveðið metnaðarmál að öll fyrirtæki og stofnanir eigi að geta áunnið sér jafnlaunavottun án þess að þurfa að fjárfesta í kostnaðarsamri ráðgöf utanaðkomandi sérfræðinga með snjallri tækni. Snjallar lausnir eins og Justly Pay gera umsjónarfólki kerfisins kleift að vera sjálfbær í umsjón og umbótaferlinu sem þarf að fá starfsfólk og stjórnendur með í. Það er skemmtilega vinnan og mannauðsfólk á að hafa tíma til þess að sinna henni en ekki vera að hringsnúast í því að leggja grunn að gæðakerfi í fyrsta sinn nú rétt fyrir jól.

Höfundur er forstöðumaður gæða- og innkaupalausna hjá Origo.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×