Ræður heilt teymi til að komast í form Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. september 2022 16:01 Arthur Melo vill ólmur komast í betra form til að geta hjálpað Liverpool inni á vellinum. getty/Cesare Purini Brasilíumaðurinn Arthur Melo er staðráðinn í að standa sig hjá Liverpool og hefur ráðið heilt teymi til að hjálpa sér við það.
Arthur kom til Liverpool á láni frá Juventus á lokadegi félagaskiptagluggans. Hann lék sinn fyrsta leik fyrir liðið í 4-1 tapi fyrir Napoli í Meistaradeild Evrópu fyrr í þessum mánuði. Hinn 26 ára Arthur hefur verið meiðslum hrjáður undanfarin ár og Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, sagði fjölmiðla að hann þurfi að fara varlega með Brassann. Eftir að Arthur heyrði þetta tók hann til óspilltra málanna og réði heilt teymi sem á að hjálpa honum að komast á völlinn og haldast þar. Í teyminu eru sjúkraþjálfari, næringarfræðingur og þrekþjálfari. Ekki má það minna vera. Arthur vill greinilega gera allt sem hann getur til að komast í betra form og bað til dæmis um að fá að spila með varaliði Liverpool í bikarkeppni neðri deildarliða, svokölluðum Papa John's bikar. Hann var í byrjunarliði varaliðs Liverpool í leikjum gegn varaliði Leicester City og Rochdale. Juventus keypti Arthur frá Barcelona sumarið 2020. Hann lék aðeins 63 leiki á tveimur tímabilum með Gömlu konunni. Arthur hefur leikið 22 leiki fyrir brasilíska landsliðið og var í lykilhlutverki þegar það varð Suður-Ameríkumeistari 2019.
Enski boltinn Mest lesið Lengri heimferð bíður KR-inga og Egill kallar eftir Akraborginni Íslenski boltinn Uppgjör: FH - KA 5-0 | FH pakkaði KA saman Íslenski boltinn Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Enski boltinn Enginn sá tölvupóstinn frá UEFA Sport Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Enski boltinn Messi slær enn eitt metið Fótbolti Það verða tónleikar í hálfleik á úrslitum HM félagsliða Sport Marcus Rashford neitar tilboði frá Sádí-Arabíu Sport „Við erum klárlega að fara í alvöru slagsmál“ Íslenski boltinn Björn Daníel: Vonandi fæ ég tvo Múmínbolla Fótbolti Fleiri fréttir Liverpool heiðraði minningu Jota og vann sigur Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Onana frá næstu vikurnar Yfirgefur herbúðir Chelsea tveimur dögum fyrir úrslitaleik Bræðurnir heiðraðir í fyrsta æfingaleik Liverpool Forest íhugar lögsókn gegn Tottenham Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Arsenal og Liverpool að slá heimsmetið United leitar að yfirmanni leikmannakaupa Man. Utd vill fá úrslitaleikinn á HM kvenna í fótbolta Arsenal eflir miðjuna enn frekar Stefán mætir Liverpool þrátt fyrir fráfall Jota Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Besti ungi leikmaðurinn í Japan í fyrra kominn til Tottenham Everton búið að finna sinn Peter Crouch Amorim sagði nei og Man. United missti af 1,6 milljörðum Freyr missir lykilmann fyrir metfé Leikmenn Liverpool þurfa að mæta í vinnuna í dag Segir Arsenal vera að fá til sín „heila framtíðarinnar“ Óvissan tekur við hjá Hákoni Þrennubikar Man. United geymdur á Anfield Oasis tileinkaði Diogo Jota lag á fyrstu tónleikunum í sextán ár Umboðsmaður með Íslandstengingu sakaður um að nauðga konu í sex ár Taka tíuna af Rashford og segja honum að vera lengur í sumarfríi Slot um Jota: Vinur allra og átti draumasumar sem gerir þetta enn sorglegra Michael Edwards og Richard Hughes senda frá sér yfirlýsingu vegna Jota Allt sem við vitum um banaslys Diogo Jota Sjá meira