Innlent

MH verður fyrsti skólinn til að inn­leiða að­gerða­á­ætlun í kyn­ferðis­brota­málum

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Fleiri hundruð nemendur mótmæltu aðgerðaleysi í kynferðisbrotamálum fyrir utan MH í síðustu viku.
Fleiri hundruð nemendur mótmæltu aðgerðaleysi í kynferðisbrotamálum fyrir utan MH í síðustu viku. Vísir/Egill

Þolendur í menntaskólum munu fá meiri sveigjanleika í námi og aukið utanumhald þegar ný aðgerðaáætlun um einelti, kynferðislega áreitni og kynferðislegt ofbeldi verður innleidd. Menntaskólinn við Hamrahlíð verður fyrsti framhaldsskólinn til að innleiða áætlunina en þar var gerð bylting í byrjun mánaðar vegna óánægju nemenda með viðbrögð skólans í slíkum málum. 

Fréttablaðið greinir frá þessu en Steinn Jóhannsson, rektor MH, staðfesti í skriflegu svari við blaðið að MH veðri fyrstiskólinn til að innleiða aðgerðaáætlunina, sem unnin er af Sambandi íslenskra framhaldsskólanema og menntayfirvöldum. Að hans sögn mun vinnu við áætlunina ljúka á næstu vikum.

Að sögn Steins mun nemendum standa til boða að sækja sérstakan kynheilbrigðisáfanga við skólann á næstu önn. Rúmlega áttatíu nemendur hafi þegar skráð sig í áfangann. Þá hafi verið settur sérstakur tilkynningahnappur á heimasíðu skólans þar sem hægt sé að tilkynna einelti, kynferðislega áreitni eða kynferðislegt ofbeldi innan skólans. 

„Utanumhald um þolendur er aukið og þeir fá að njóta þess sveigjanleika í náminu sem aðstæður krefjast. Náms- og starfsráðgjafar auk sálfræðings sjá um að þjónusta nemendur og gera kennurum viðvart þegar aðstæður kalla á sérstakan sveigjanleika,“ segir í bréfi skólastjórnenda sem sent var nemendum og aðstandendum skólans í gær að því er fram kemur í Fréttablaðinu. 

Þá muni skólinn gera allt sem í hans valdi er til að tryggja að þolendur og meintir gerendur sitji ekki saman í tímum og boðið vreði upp á úrræði þar sem nemendur geti stundað nám heimanfrá í samvinnu við kennara. 

Eins og áður segir var hálfgerð bylting gerð í MH í upphafi mánaðar þegar nemendur virtust komnir með nóg af aðgerðaleysi skólastjórnenda í kynferðisbrotamálum. Um þúsund nemdendur söfnuðust saman við skólann 6. október til að sýna þolendum kynferðisofbeldis stuðning og krefjast að tekið sé á slíkum málum af festu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×