Holland sökkti Senegal undir lok leiks Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 21. nóvember 2022 18:00 Hollendingar fagna eins og óðir menn. Stuart Franklin/Getty Images Hollendingar sökktu Senegal undir lok leiks Allt stefndi í að Cody Gakpo yrði hetja Hollands en mark Davy Klaassen þegar komið var á níundu mínútu uppbótartíma tryggði Hollendingum 2-0 sigur á Senegal í fyrsta leik liðanna á HM í fótbolta sem nú fer fram í Katar. Lærisveinar Louis van Gaal átti erfitt uppdráttar í kvöld gegn spræku liði Senegal sem var þó án síns besta manns, Sadio Mané. Ef til vill hefði Mané náð að nýta eitthvað af færunum sem Senegal fékk í leiknum en þegar flautað var til leiksloka hafði Senegal átt 15 marktilraunir en Holland 10. Þá hafði Senegal átt fjórar á markið á meðan Holland átti þrjár. Tvær þeirra komu í blálok uppbótartíma og önnur söng í netinu. Segja má að um hinn fullkomna leik hafi verið að ræða að mati Van Gaal en lið hans eru ekki þekkt fyrir að vaða í færum. Það hjálpaði svo að Andries Noppert, markvörður Hollands, átti frábæran leik. A colossal performance from this man today On his international debut, too! pic.twitter.com/DAEZnMIQ81— FIFA World Cup (@FIFAWorldCup) November 21, 2022 Gakpo skoraði með góðum skalla eftir fyrirgjöf Frenkie de Jong á 84. mínútu leiksins, var það fyrsta marktilraun Hollendinga sem rataði á markið. Gakpo leikur með PSV í heimalandinu en var meðal annars orðaður við Manchester United og önnur lið í sumar. Má reikna með að þeir orðrómar haldi áfram að móti loknu haldi Gakpo uppteknum hætti. Klaasen tvöfaldaði svo forystuna þegar boltinn hrökk fyrir fætur hans á 99. mínútu leiksins, lokatölur 2-0 og Holland byrjar HM af krafti. A winning start for the Netherlands! @adidasfootball | #FIFAWorldCup— FIFA World Cup (@FIFAWorldCup) November 21, 2022 HM 2022 í Katar Fótbolti