Fimmtán mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir vörslu barnakláms Bjarki Sigurðsson skrifar 22. nóvember 2022 22:47 Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi manninn til fimmtán mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar. Vísir/Vilhelm Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið dæmdur í fimmtán mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa aflað sér og haft í vörslum sínum tæki sem innihéldu mikið magn af barnaklámi. Maðurinn játaði brot sín skýlaust en dómur yfir honum var kveðinn við héraðsdóm Reykjavíkur fyrr í mánuðinum.
Þann 4. desember árið 2019 fannst efnið í Macbook Pro-fartölvu, Trekstor Primebook-fartölvu og Trekstor Datastation flakkara sem voru í eigu mannsins. Alls er um að ræða 494 kvikmyndir, 32.886 ljósmyndir og 98 teiknimyndir sem sýna börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt. Efnið fannst við húsleit á heimili mannsins í Reykjavík. Maðurinn hafði aldrei áður verið dæmdur til refsingar en brot hans er talið alvarlegt. Eftir að efnið fannst hefur maðurinn leitað sér aðstoðar sálfræðinga hérlendis og erlendis og farið í áfengismeðferð. Þá sinnir hann enn meðferðarvinnu og sækir viðtöl hjá fagaðilum. Hæfileg refsing var því metin fimmtán mánaða fangelsi skilorðsbundið. Þá var allt myndefni sem maðurinn var ákærður fyrir gert upptækt. Hann þarf að greiða skipuðum verjanda sínum 900 þúsund krónur. Dóminn má lesa í heild sinni hér.
Dómsmál Reykjavík Barnavernd Ofbeldi gegn börnum Mest lesið „Skiljanlegt að mörgum blöskri að vita að hann gangi laus“ Innlent Fékk ekkert símtal frá gömlu vinnufélögunum Innlent Vill breyta nafni Viðreisnar Innlent Breyta Hlöðunni í fræðslusetur fyrir 88 milljónir Innlent „Það er mikil reiði í Grafarvoginum út af þessu“ Innlent Sænskur sjúkraflutningamaður myrtur í útkalli Erlent Nýjar framkvæmdir beina fólki að umdeildum gatnamótum Innlent Ráðherra til í umræðu um sumarfrí barna Innlent Gary Busey dæmdur fyrir kynferðisbrot Erlent „Ísland á heima í hjarta Evrópu“ Innlent Fleiri fréttir Ýkt umræða um olíufund, netárás á flugvelli og bakgarðshlaup í beinni Nýjar framkvæmdir beina fólki að umdeildum gatnamótum Netárásin gæti haft áhrif á ferðir Icelandair Ráðherra til í umræðu um sumarfrí barna „Ísland á heima í hjarta Evrópu“ Allt að gerast í Rangárþingi hvað varðar lífsgæði íbúa Sniðgangan friðsæl leið til að mótmæla og sýna samstöðu „Skiljanlegt að mörgum blöskri að vita að hann gangi laus“ Fordæmalaust kynferðisbrotamál og viðbragð NATO við brölti Rússa Vill breyta nafni Viðreisnar Ýmsar leiðir fyrir lögreglu til að tryggja að endurkomubann virki Landsþing Viðreisnar hafið Peningakassa stolið af hóteli í miðbæ Reykjavíkur Breyta Hlöðunni í fræðslusetur fyrir 88 milljónir Ísland gegnir formennsku í Norræna blaðamannasambandinu Ísland rampar upp Úkraínu Drógu vélarvana togara í land „Það er mikil reiði í Grafarvoginum út af þessu“ Fékk ekkert símtal frá gömlu vinnufélögunum Leiðinlegt að óprúttnir aðilar skemmi fyrir heyrnarlausum Gervigreindarvélmenni mætt til starfa til að flokka rusl Segir lítið til í orðum ráðherra Gengur laus grunaður um barnaníð og meintar rangfærslur ráðherra Alvarlega slasaður eftir vélsleðaslys á Langjökli Stefán Einar greiðir fyrir umdeilda boli Breytingar á framhaldsskólastigi: „Við erum að reyna átta okkur á þessu“ Rannsaka hvort maðurinn hafi haft samræði við ungan drenginn Karlmaður á fertugsaldri fannst látinn í Hafnarfirði Lýsa yfir fullum stuðningi við stjórnendur Sólheima Vill að „guð“ taki á þeim sem vilja ekki fækka sveitarstjórnarmönnum Sjá meira