Veður

Fremur kalt á næstu dögum

Atli Ísleifsson skrifar
Frost verður á bilinu núll til tíu stig, mildast við ströndina.
Frost verður á bilinu núll til tíu stig, mildast við ströndina. Vísir/Vilhelm

Næstu daga verður fremur kalt, einkum þegar haft er í huga að nóvember var mjög mildur.

Fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings að það verði éljagangur fyrir norðan og austan, en víða léttskýjað annars staðar. Frost verður á bilinu núll til tíu stig, mildast við ströndina.

Reikna má með fimm til tíu metrum á sekúndu, en átta til þrettán metrum á sekúndu með austurströndinni og yfirleitt átta til fimmtán í dag.

Svo er útlit fyrir fremur rólegt veður um helgina en það er einna helst skýjað og norðan kaldi allra austast á landinu.

Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag: Norðan 8-15 m/s og él norðan- og austanlands, en annars yfirleitt léttskýjað. Frost víða 1 til 7 stig, en frostlaust syðst.

Á laugardag og sunnudag: Hæg norðlæg eða breytileg átt, en 5-10 austast. Skýjað norðaustantil og stöku él, en annars víða léttskýjað. Frost 2 til 8 stig.

Á mánudag: Hægviðri, víða léttskýjað og kalt í veðri, en skýjað og mildara austanlands.

Á þriðjudag: Norðaustanátt með éljum, en bjartviðri sunnan heiða og áfram fremur kalt.

Á miðvikudag: Útlit fyrir kalda norðlæga átt með éljum um mest allt land.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×