Fimm skotnir í „hrottalegri“ árás í Kanada Samúel Karl Ólason skrifar 19. desember 2022 09:24 Lögregluþjónar að störfum í Vaughan. AP/Arlyn McAdorey Fimm voru skotnir til bana í fjölbýlishúsi í úthverfi Toronto í Kanada í nótt. Árásarmaðurinn særði minnst einn til viðbótar en hann var svo skotinn til bana af lögregluþjónum. Lögreglan hefur lýst árásinni sem hrottalegri.
Tilefni árásarinnar liggur ekki fyrir en árásarmaðurinn er sagður hafa dáið eftir að hann var króaður af af lögregluþjónum, samkvæmt frétt Ríkisútvarps Kanada. Svo virðist sem árásin hafi ekki verið bundin við eina íbúð í fjölbýlishúsinu, sem er í Vaughan. Lögreglan í bænum segir þó að lögregluþjónar hafi komið að hrottalegum vettvangi þar sem margir hafi verið skotnir. Ekki liggur fyrir hvernig byssu árásarmaðurinn notaði. Einn lögregluþjónn sagði CNN að hann hefði aldrei tekið þátt í eins hræðilegu útkalli og þessu. Lögregluþjónar fóru úr íbúð í íbúð til að ganga úr skugga um að árásarmennirnir væru ekki fleiri og rýma fjölbýlishúsið. Árásir sem þessar eru sjaldgæfar í Kanada og íbúar Toronto hafa lengi stært sig af því að búa í einni öruggustu borg heimsins, samkvæmt AP fréttaveitunni. Kanadamenn hafa þó áhyggjur af því að skotárásum fari fjölgandi í takt við þróunina í Bandaríkjunum. Byssulöggjöf er þó mun strangari í Kanada en hún er í Bandaríkjunum.
Kanada Mest lesið Árásarkonan Þjóðverji á fertugsaldri Erlent Sást ekki til sólar fyrir mýi Innlent Tekist á um breytta ásýnd Suðurlandsbrautar með tilkomu Borgarlínunnar Innlent Brennandi einbýlishús reyndist eyðibýli Innlent Bensínbrúsar inni í íbúðinni Innlent Beiðni Oscars hafnað: „Það bíður hans engin birta, það er enginn þarna“ Innlent Hitabylgjan sú mesta í maímánuði svo vitað sé Veður Fólk látið vinna of hratt og fái ekki greitt fyrir alla vinnuna Innlent Nýr meirihluti komi ekki til greina Innlent Fólk veltir fyrir sér hvort Áslaug Arna hafi verið slompuð í ræðustól Innlent Fleiri fréttir Árásarkonan Þjóðverji á fertugsaldri Tólf særðir eftir hnífstunguárás í Hamborg Vilja breyta mannréttindasáttmála til að auðvelda sér að sparka innflytjendum úr landi Hvetja Íslendinga í Harvard til að hafa samband Ákærður fyrir að myrða sendiráðsstarfsfólk Ísraels Netanjahú segir Starmer, Macron og Carney draga taum Hamas Rússar notuðu Brasilíu sem njósnaraverksmiðju Íslendingur í Bandaríkjunum: „Þetta er mjög óþægileg staða“ Banna erlendum nemendum að sækja Harvard Eyðilegging í íbúðahverfi í San Diego eftir að lítil flugvél hrapaði Samþykktu billjóna dollara skattalækkanir og niðurskurð til velferðarmála Norðmaður fékk flutningaskip næstum inn í húsið á meðan hann svaf Tveir ísraelskir sendiráðsstarfmenn skotnir til bana í Washington Íbúar Austur-Grænlands mótmæltu einangrun og pólitísku afskiptaleysi Skutu mann í röngu húsi en brutu ekki af sér Nota lygapróf til að leita lekamanna og refsa þeim Notuðu þúsundir myndavéla til að vakta hergagnaflutninga Sat fyrir forseta Suður-Afríku með ásökunum um þjóðarmorð á hvítum Handtóku unga öfgahægrimenn sem hugðu á hryðjuverk Úkraínskur fyrrverandi embættismaður skotinn til bana í Madrid Norðmenn þurfa að taka tillit til loftslagsáhrifa olíuvinnslunar Dreifing hjálpargagna enn ekki hafin Senda farandfólk frá Asíu til Suður-Súdan Synir El Chapo sagðir hafa myndað afdrífaríkt bandalag Ætlar að eyða mun minna í pólitíkina Hætta viðræðum við Ísrael og boða aðgerðir Evrópuríki leggja refsiaðgerðir á „skuggaflota“ Rússa Fjarlægja höfundarmerkingu einnar frægustu fréttaljósmyndar sögunnar Leiðtogar Bretlands, Frakklands og Kanada hóta aðgerðum gegn Ísrael Sagði „Diddy“ hafa hótað að láta hana hverfa Sjá meira