Skólahald fellt niður til miðvikudags vegna rakaskemmda Vésteinn Örn Pétursson skrifar 2. febrúar 2023 21:01 Mygla hefur greinst á nokkrum stöðum í Flataskóla. Vísir/Sigurjón Stjórn grunnskólans Flataskóla í Garðabæ hefur ákveðið að fella niður skólahald í skólanum til næsta miðvikudags. Ástæðan er rakaskemmdir. Þetta kemur fram í tölvupósti sem Ágúst Frímann Jakobsson skólastjóri sendi á forráðamenn allra nemenda við skólann. Þar kemur fram að nú liggi fyrir niðurstöður úr flestum sýnum sem tekin hafi verið vegna rakaskemmda í skólanum. Sjá einnig: Hluti nemenda haldi sig heima og aðrir komi með nesti vegna myglu „Ákveðið hefur verið að loka nokkrum skólastofum og kennaraaðstöðu vegna rakaskemmda. Niðurstöður DNA ryksýnasýni í skólanum koma almennt vel út. Hægt er að ráðast í minni viðgerðir á nokkrum stöðum mjög fljótlega en aðrar verða umfangsmeiri og munu taka lengri tíma,“ segir í póstinum. Því hafi verið ákveðið, í samráði við bæjarskrifstofu Garðabæjar, að loka skólanum til næsta miðvikudags, 8. febrúar. Þannig fáist ráðrúm til að endurskipuleggja skólastarfið og tryggja öryggi nemenda og starfsfólks. Eins sé ljóst að loka þurfi ákveðnum álmum skólans um óákveðinn tíma. Reyna að nýta vetrarfríið Vetrarfrí í grunnskólum Garðabæjar hefst 13. febrúar en í póstinum segir að allt kapp verði lagt á að nýta fríið í framkvæmdir á rýmum sem eru lítillega skemmd, svo skólastarf geti hafist þar sem fyrst. Þá verði lögð sérstök áhersla á að raska sem minnst starfsemi yngstu bekkjardeilda. „Fyrir liggur að hægt er að flytja eldri bekki í færanlegar kennslustofur skömmu eftir vetrarfrí, í Miðgarð og til skoðunar eru fleiri lausnir. Næstu dagar fara í nánari útfærslu þess og verða starfsmenn og forráðamenn upplýstir við fyrsta tækifæri. Við vinnum áfram náið með verkfræðistofunni Mannvit og munu þau útfæra framkvæmdaáætlun fyrir Flataskóla. Um leið og við þökkum ykkur fyrir skilning og góð samskipti við þessar flóknu aðstæður gerum við okkur grein fyrir því að þetta er talsvert inngrip inn í líf nemenda, en við erum sannfærð um að við komumst í gegnum þetta með samhentu átaki allra þeirra sem starfa og læra í Flataskóla.“ Boðað hefur verið til fundar fyrir forráðamenn næstkomandi þriðjudag, 7. febrúar, í salnum á Sveinatungu á Garðatorgi. Þar verði farið yfir málin og upplýst um breytingar á skólastarfinu. Fundinum verður einnig streymt beint á netinu. Hér að neðan má sjá póstinn í heild sinni: Kæru forráðamennVið höfum nú fengið niðurstöður úr flestum sýnum sem tekin voru vegna rakaskemmda i Flataskóla, en þær bárust seinnipartinn í dag fimmtudag. Ákveðið hefur verið að loka nokkrum skólastofum og kennaraaðstöðu vegna rakaskemmda. Niðurstöður DNA ryksýnasýni í skólanum koma almennt vel út. Hægt er að ráðast í minni viðgerðir á nokkrum stöðum mjög fljótlega en aðrar verða umfangsmeiri og munu taka lengri tíma.Við höfum, í samráði við bæjarskrifstofuna, ákveðið að loka skólanum til miðvikudagsins 8.febrúar til að hafa ráðrúm til þess að endurskipuleggja skólastarfið og tryggja öryggi nemenda og starfsfólks. Ljóst er að loka þarf ákveðnum álmum í skólanum í óákveðinn tíma.Frístund opnar aftur með breyttu sniði frá og með þriðjudegi. Hún verður í rými í Ásgarði. Nánari upplýsingar um það síðar.Nokkrum rýmum hefur þegar verið lokað í skólanum, en nýjar niðurstöður sýna rakaskemmdir, myglu eða mengun í eftirfarandi rýmum:Suðurálma: Gangur, heimilisfræðistofa og stofa S-220 (5. b. stofa Margrétar)Austurálma: Stofa A-206 (1.b stofa Svanhvítar)Vesturálma: Kaffistofa starfsfólks og skrifstofa námsráðgjafaNorðurálma: Inngangur á norðurhlið, geymsla við myndmenntastofu og snyrting í stofu N-119 (stofa var þegar lokuð)Þriðjudaginn 7. febrúar klukkan 17:00 verður haldinn opinn fundur fyrir forráðamenn í salnum Sveinatungu á Garðatorgi til að fara yfir málin og upplýsa um breytingar á skólastarfinu. Fundurinn verður einnig í beinu streymi.Næstu skref:Skólastarf hefst aftur í Flataskóla á miðvikudag.Á mánudag klukkan 11:00 verður fyrsti samráðsfundur foreldra, starfsmanna og stjórnenda klukkan. Foreldrafélagið er beðið um að senda tvo fulltrúa á fundinn sem verður haldinn á Teams. Hann sitja tveir fulltrúar foreldrafélagsins, tveir fulltrúar starfsmanna, Ágúst skólastjóri og fulltrúar bæjarins.Frístund verður opin, með breyttu sniði, frá klukkan 13-17 frá og með þriðjudegi fyrir nemendur sem þar eru skráðir.Frístundabíll mun ganga samkvæmt áætlun.Starf leikskóladeildar er óbreytt í Urriðabóli.Húsgögn og gögn verða þrifin á næstu dögum samkvæmt leiðbeiningum Mannvits.Vetrarfrí hefst 13. febrúar í Garðabæ. Allt kapp er lagt á að nýta vetrarfríið til að fara í framkvæmdir á rýmum sem eru lítillega skemmd svo hægt sé að hefja þar aftur skólastarf. Lögð er áhersla á að raska sem minnst starfsemi hjá yngstu bekkjardeildunum.Fyrir liggur að hægt er að flytja eldri bekki í færanlegar kennslustofur skömmu eftir vetrarfrí, í Miðgarð og til skoðunar eru fleiri lausnir. Næstu dagar fara í nánari útfærslu þess og verða starfsmenn og forráðamenn upplýstir við fyrsta tækifæri. Við vinnum áfram náið með verkfræðistofunni Mannvit og munu þau útfæra framkvæmdaáætlun fyrir Flataskóla.Um leið og við þökkum ykkur fyrir skilning og góð samskipti við þessar flóknu aðstæður gerum við okkur grein fyrir því að þetta er talsvert inngrip inn í líf nemenda, en við erum sannfærð um að við komumst í gegnum þetta með samhentu átaki allra þeirra sem starfa og læra í Flataskóla.Við munum senda upplýsingapósta mjög reglulega næstu daga og sjáumst svo á fundi á þriðjudag. Garðabær Grunnskólar Skóla - og menntamál Börn og uppeldi Mygla Tengdar fréttir Hluti nemenda haldi sig heima og aðrir komi með nesti vegna myglu Niðurstöður úr sýnatökum í Flataskóla í Garðabæ benda til þess að loka þurfi nokkrum rýmum í skólanum til viðbótar vegna myglu. Nemendur í þriðja og sjöunda bekk þurfa að halda sig heima næstu tvo daga og aðrir nemendur þurfa að taka með nesti vegna lokunar mötuneytis skólans. 23. janúar 2023 20:15 Skýrslan sem hvarf Samfélag byggir á trausti. Við treystum því að hagsmunir okkar séu varðir af þeim sem kjörnir eru til ábyrgðarstarfa á opinberum vettvangi og að yfirvöld séu traustsins verð, ekki síst þegar kemur að heilsu barnanna okkar. Á haustdögum, eftir að jarðvegssveppur fannst í Miðgarði, lagði Garðabæjarlistinn fram ítarlega fyrirspurn um viðbrögð og forvarnir bæjarins við raka- og mygluskemmdum. 17. janúar 2023 17:31 Mest lesið Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Spjótin beinast að syni Reiners Erlent Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Umferðarslys á Breiðholtsbraut Innlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Innlent Fleiri fréttir Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Handtekinn með stóran hníf Sjá meira
Þetta kemur fram í tölvupósti sem Ágúst Frímann Jakobsson skólastjóri sendi á forráðamenn allra nemenda við skólann. Þar kemur fram að nú liggi fyrir niðurstöður úr flestum sýnum sem tekin hafi verið vegna rakaskemmda í skólanum. Sjá einnig: Hluti nemenda haldi sig heima og aðrir komi með nesti vegna myglu „Ákveðið hefur verið að loka nokkrum skólastofum og kennaraaðstöðu vegna rakaskemmda. Niðurstöður DNA ryksýnasýni í skólanum koma almennt vel út. Hægt er að ráðast í minni viðgerðir á nokkrum stöðum mjög fljótlega en aðrar verða umfangsmeiri og munu taka lengri tíma,“ segir í póstinum. Því hafi verið ákveðið, í samráði við bæjarskrifstofu Garðabæjar, að loka skólanum til næsta miðvikudags, 8. febrúar. Þannig fáist ráðrúm til að endurskipuleggja skólastarfið og tryggja öryggi nemenda og starfsfólks. Eins sé ljóst að loka þurfi ákveðnum álmum skólans um óákveðinn tíma. Reyna að nýta vetrarfríið Vetrarfrí í grunnskólum Garðabæjar hefst 13. febrúar en í póstinum segir að allt kapp verði lagt á að nýta fríið í framkvæmdir á rýmum sem eru lítillega skemmd, svo skólastarf geti hafist þar sem fyrst. Þá verði lögð sérstök áhersla á að raska sem minnst starfsemi yngstu bekkjardeilda. „Fyrir liggur að hægt er að flytja eldri bekki í færanlegar kennslustofur skömmu eftir vetrarfrí, í Miðgarð og til skoðunar eru fleiri lausnir. Næstu dagar fara í nánari útfærslu þess og verða starfsmenn og forráðamenn upplýstir við fyrsta tækifæri. Við vinnum áfram náið með verkfræðistofunni Mannvit og munu þau útfæra framkvæmdaáætlun fyrir Flataskóla. Um leið og við þökkum ykkur fyrir skilning og góð samskipti við þessar flóknu aðstæður gerum við okkur grein fyrir því að þetta er talsvert inngrip inn í líf nemenda, en við erum sannfærð um að við komumst í gegnum þetta með samhentu átaki allra þeirra sem starfa og læra í Flataskóla.“ Boðað hefur verið til fundar fyrir forráðamenn næstkomandi þriðjudag, 7. febrúar, í salnum á Sveinatungu á Garðatorgi. Þar verði farið yfir málin og upplýst um breytingar á skólastarfinu. Fundinum verður einnig streymt beint á netinu. Hér að neðan má sjá póstinn í heild sinni: Kæru forráðamennVið höfum nú fengið niðurstöður úr flestum sýnum sem tekin voru vegna rakaskemmda i Flataskóla, en þær bárust seinnipartinn í dag fimmtudag. Ákveðið hefur verið að loka nokkrum skólastofum og kennaraaðstöðu vegna rakaskemmda. Niðurstöður DNA ryksýnasýni í skólanum koma almennt vel út. Hægt er að ráðast í minni viðgerðir á nokkrum stöðum mjög fljótlega en aðrar verða umfangsmeiri og munu taka lengri tíma.Við höfum, í samráði við bæjarskrifstofuna, ákveðið að loka skólanum til miðvikudagsins 8.febrúar til að hafa ráðrúm til þess að endurskipuleggja skólastarfið og tryggja öryggi nemenda og starfsfólks. Ljóst er að loka þarf ákveðnum álmum í skólanum í óákveðinn tíma.Frístund opnar aftur með breyttu sniði frá og með þriðjudegi. Hún verður í rými í Ásgarði. Nánari upplýsingar um það síðar.Nokkrum rýmum hefur þegar verið lokað í skólanum, en nýjar niðurstöður sýna rakaskemmdir, myglu eða mengun í eftirfarandi rýmum:Suðurálma: Gangur, heimilisfræðistofa og stofa S-220 (5. b. stofa Margrétar)Austurálma: Stofa A-206 (1.b stofa Svanhvítar)Vesturálma: Kaffistofa starfsfólks og skrifstofa námsráðgjafaNorðurálma: Inngangur á norðurhlið, geymsla við myndmenntastofu og snyrting í stofu N-119 (stofa var þegar lokuð)Þriðjudaginn 7. febrúar klukkan 17:00 verður haldinn opinn fundur fyrir forráðamenn í salnum Sveinatungu á Garðatorgi til að fara yfir málin og upplýsa um breytingar á skólastarfinu. Fundurinn verður einnig í beinu streymi.Næstu skref:Skólastarf hefst aftur í Flataskóla á miðvikudag.Á mánudag klukkan 11:00 verður fyrsti samráðsfundur foreldra, starfsmanna og stjórnenda klukkan. Foreldrafélagið er beðið um að senda tvo fulltrúa á fundinn sem verður haldinn á Teams. Hann sitja tveir fulltrúar foreldrafélagsins, tveir fulltrúar starfsmanna, Ágúst skólastjóri og fulltrúar bæjarins.Frístund verður opin, með breyttu sniði, frá klukkan 13-17 frá og með þriðjudegi fyrir nemendur sem þar eru skráðir.Frístundabíll mun ganga samkvæmt áætlun.Starf leikskóladeildar er óbreytt í Urriðabóli.Húsgögn og gögn verða þrifin á næstu dögum samkvæmt leiðbeiningum Mannvits.Vetrarfrí hefst 13. febrúar í Garðabæ. Allt kapp er lagt á að nýta vetrarfríið til að fara í framkvæmdir á rýmum sem eru lítillega skemmd svo hægt sé að hefja þar aftur skólastarf. Lögð er áhersla á að raska sem minnst starfsemi hjá yngstu bekkjardeildunum.Fyrir liggur að hægt er að flytja eldri bekki í færanlegar kennslustofur skömmu eftir vetrarfrí, í Miðgarð og til skoðunar eru fleiri lausnir. Næstu dagar fara í nánari útfærslu þess og verða starfsmenn og forráðamenn upplýstir við fyrsta tækifæri. Við vinnum áfram náið með verkfræðistofunni Mannvit og munu þau útfæra framkvæmdaáætlun fyrir Flataskóla.Um leið og við þökkum ykkur fyrir skilning og góð samskipti við þessar flóknu aðstæður gerum við okkur grein fyrir því að þetta er talsvert inngrip inn í líf nemenda, en við erum sannfærð um að við komumst í gegnum þetta með samhentu átaki allra þeirra sem starfa og læra í Flataskóla.Við munum senda upplýsingapósta mjög reglulega næstu daga og sjáumst svo á fundi á þriðjudag.
Kæru forráðamennVið höfum nú fengið niðurstöður úr flestum sýnum sem tekin voru vegna rakaskemmda i Flataskóla, en þær bárust seinnipartinn í dag fimmtudag. Ákveðið hefur verið að loka nokkrum skólastofum og kennaraaðstöðu vegna rakaskemmda. Niðurstöður DNA ryksýnasýni í skólanum koma almennt vel út. Hægt er að ráðast í minni viðgerðir á nokkrum stöðum mjög fljótlega en aðrar verða umfangsmeiri og munu taka lengri tíma.Við höfum, í samráði við bæjarskrifstofuna, ákveðið að loka skólanum til miðvikudagsins 8.febrúar til að hafa ráðrúm til þess að endurskipuleggja skólastarfið og tryggja öryggi nemenda og starfsfólks. Ljóst er að loka þarf ákveðnum álmum í skólanum í óákveðinn tíma.Frístund opnar aftur með breyttu sniði frá og með þriðjudegi. Hún verður í rými í Ásgarði. Nánari upplýsingar um það síðar.Nokkrum rýmum hefur þegar verið lokað í skólanum, en nýjar niðurstöður sýna rakaskemmdir, myglu eða mengun í eftirfarandi rýmum:Suðurálma: Gangur, heimilisfræðistofa og stofa S-220 (5. b. stofa Margrétar)Austurálma: Stofa A-206 (1.b stofa Svanhvítar)Vesturálma: Kaffistofa starfsfólks og skrifstofa námsráðgjafaNorðurálma: Inngangur á norðurhlið, geymsla við myndmenntastofu og snyrting í stofu N-119 (stofa var þegar lokuð)Þriðjudaginn 7. febrúar klukkan 17:00 verður haldinn opinn fundur fyrir forráðamenn í salnum Sveinatungu á Garðatorgi til að fara yfir málin og upplýsa um breytingar á skólastarfinu. Fundurinn verður einnig í beinu streymi.Næstu skref:Skólastarf hefst aftur í Flataskóla á miðvikudag.Á mánudag klukkan 11:00 verður fyrsti samráðsfundur foreldra, starfsmanna og stjórnenda klukkan. Foreldrafélagið er beðið um að senda tvo fulltrúa á fundinn sem verður haldinn á Teams. Hann sitja tveir fulltrúar foreldrafélagsins, tveir fulltrúar starfsmanna, Ágúst skólastjóri og fulltrúar bæjarins.Frístund verður opin, með breyttu sniði, frá klukkan 13-17 frá og með þriðjudegi fyrir nemendur sem þar eru skráðir.Frístundabíll mun ganga samkvæmt áætlun.Starf leikskóladeildar er óbreytt í Urriðabóli.Húsgögn og gögn verða þrifin á næstu dögum samkvæmt leiðbeiningum Mannvits.Vetrarfrí hefst 13. febrúar í Garðabæ. Allt kapp er lagt á að nýta vetrarfríið til að fara í framkvæmdir á rýmum sem eru lítillega skemmd svo hægt sé að hefja þar aftur skólastarf. Lögð er áhersla á að raska sem minnst starfsemi hjá yngstu bekkjardeildunum.Fyrir liggur að hægt er að flytja eldri bekki í færanlegar kennslustofur skömmu eftir vetrarfrí, í Miðgarð og til skoðunar eru fleiri lausnir. Næstu dagar fara í nánari útfærslu þess og verða starfsmenn og forráðamenn upplýstir við fyrsta tækifæri. Við vinnum áfram náið með verkfræðistofunni Mannvit og munu þau útfæra framkvæmdaáætlun fyrir Flataskóla.Um leið og við þökkum ykkur fyrir skilning og góð samskipti við þessar flóknu aðstæður gerum við okkur grein fyrir því að þetta er talsvert inngrip inn í líf nemenda, en við erum sannfærð um að við komumst í gegnum þetta með samhentu átaki allra þeirra sem starfa og læra í Flataskóla.Við munum senda upplýsingapósta mjög reglulega næstu daga og sjáumst svo á fundi á þriðjudag.
Garðabær Grunnskólar Skóla - og menntamál Börn og uppeldi Mygla Tengdar fréttir Hluti nemenda haldi sig heima og aðrir komi með nesti vegna myglu Niðurstöður úr sýnatökum í Flataskóla í Garðabæ benda til þess að loka þurfi nokkrum rýmum í skólanum til viðbótar vegna myglu. Nemendur í þriðja og sjöunda bekk þurfa að halda sig heima næstu tvo daga og aðrir nemendur þurfa að taka með nesti vegna lokunar mötuneytis skólans. 23. janúar 2023 20:15 Skýrslan sem hvarf Samfélag byggir á trausti. Við treystum því að hagsmunir okkar séu varðir af þeim sem kjörnir eru til ábyrgðarstarfa á opinberum vettvangi og að yfirvöld séu traustsins verð, ekki síst þegar kemur að heilsu barnanna okkar. Á haustdögum, eftir að jarðvegssveppur fannst í Miðgarði, lagði Garðabæjarlistinn fram ítarlega fyrirspurn um viðbrögð og forvarnir bæjarins við raka- og mygluskemmdum. 17. janúar 2023 17:31 Mest lesið Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Spjótin beinast að syni Reiners Erlent Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Umferðarslys á Breiðholtsbraut Innlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Innlent Fleiri fréttir Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Handtekinn með stóran hníf Sjá meira
Hluti nemenda haldi sig heima og aðrir komi með nesti vegna myglu Niðurstöður úr sýnatökum í Flataskóla í Garðabæ benda til þess að loka þurfi nokkrum rýmum í skólanum til viðbótar vegna myglu. Nemendur í þriðja og sjöunda bekk þurfa að halda sig heima næstu tvo daga og aðrir nemendur þurfa að taka með nesti vegna lokunar mötuneytis skólans. 23. janúar 2023 20:15
Skýrslan sem hvarf Samfélag byggir á trausti. Við treystum því að hagsmunir okkar séu varðir af þeim sem kjörnir eru til ábyrgðarstarfa á opinberum vettvangi og að yfirvöld séu traustsins verð, ekki síst þegar kemur að heilsu barnanna okkar. Á haustdögum, eftir að jarðvegssveppur fannst í Miðgarði, lagði Garðabæjarlistinn fram ítarlega fyrirspurn um viðbrögð og forvarnir bæjarins við raka- og mygluskemmdum. 17. janúar 2023 17:31