Ökumaðurinn úrskurðaður látinn Máni Snær Þorláksson skrifar 11. apríl 2023 21:24 Bíll fór í höfnina í Vestmannaeyjum í kvöld. Aðsend Bíll fór í höfnina við bryggju í Vestmannaeyjum í kvöld. Einn ökumaður var í bílnum og tókst að ná honum upp úr sjónum. Endurlífgunartilraunir hófust þegar í stað en lögreglan segir þær ekki hafa borið árangur.
Mbl.is greindi fyrst frá því að bíllinn hafi endað í höfninni. Jóhannes Ólafsson, yfirlögregluþjónn í Vestmannaeyjum, sagði í samtali við fréttastofu að tekist hafi að ná ökumanninum upp úr höfninni og að unnið hafi verið að endurlífgun. Í færslu sem lögreglan í Vestmannaeyjum birtir á Facebook-síðu sinni kemur fram að endurlífgunartilraunir hafi ekki borið árangur, ökumaðurinn hafi verið úrskurðaður látinn. Þá segir lögreglan að tilkynning um að bíllinn hafi endað í höfninni hafi borist frá skipverjum á bát sem var á leið inn til hafnar. „Greiðlega gekk að ná ökumanninum upp, sem var einn í bílnum. Lífgunartilraunir hófust þegar í stað en báru ekki árangur og var ökumaðurinn úrskurðaður látinn,“ segir í færslunni. Rannsókn stendur nú yfir af tildrögum slyssins. Lögreglan þakkar þá öllum viðbragðsaðilum og vottar aðstandendum ökumannsins samúð. Fréttin hefur verið uppfærð.
Vestmannaeyjar Mest lesið Nafn unga mannsins sem lést á Vesturlandsvegi Innlent Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Innlent Glæpir eiga ekki að borga sig: Gæti hagnast fjárhagslega á að hafa banað föður sínum Innlent „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ Innlent „Ellibætur“ frá ríkinu eigi að heyra sögunni til Innlent Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Innlent Deildar meiningar um tölvupóst sem óvart var sendur á alla í nefndinni Innlent Ríkisstjórnin sendi leiðréttingu inn í beina útsendingu Innlent „Gjörsamlega samfélagslega ótækt“ að hafna kröfunni Innlent Reglulega tilkynnt um þjófnað á vatni Innlent Fleiri fréttir Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Magnús Þór sjálfkjörinn Fimm ára dómur fyrir hnífaárás á fjölskylduföður Telur hagræðingaráformin þau metnaðarfyllstu Nauðsyn að skýra betur hvort eða hvenær læknar megi rjúfa þagnarskyldu Selfyssingar í 60 plús heilsueflingu klárir í jólin Skoða að koma á ferjusamgöngum milli Skotlands og Seyðisfjarðar Viðreisn gæti reynst í lykilstöðu milli blokkanna Barnavernd fylgist með fleiri ófrískum konum í neyslu en síðustu ár Fleiri óléttar konur í neyslu á borði barnaverndar og spennandi kosningar framundan Langvarandi einangrun ungrar konu gagnrýnd af Amnesty Selfoss stöðvaður í Bretlandi Þrettán nýir rafknúnir strætisvagnar teknir í notkun Zuism tekið af trúfélagaská eftir áralöng svik og pretti Mun áfram leiða lista Framsóknar í Múlaþingi Töpuðu 133 milljónum króna á kosningaári Reyndu að koma útlendingafrumvarpi að á síðustu stundu Súlunesmálið: Skoða þurfi lög er varða þagnarskyldu Samþykktu tillögu um uppbyggingu á Sorpu-lóð við Dalveg Spurningum Sigmundar Ernis svarað og málið ekki aftur í nefnd Þingstörfin á lokametrunum og styttist í jólafrí Naustin án bíla og eins og „löber“ með íslensku prjónamynstri Taka enn tuttugu þúsund króna beygju Ekið á kyrrstæðan bíl á Suðurstrandarvegi „Ellibætur“ frá ríkinu eigi að heyra sögunni til Áttu að taka tillit til þess að talsmaðurinn klikkaði Guðrún vinsælli en Agnes og traust til kirkjunnar á uppleið Glæpir eiga ekki að borga sig: Gæti hagnast fjárhagslega á að hafa banað föður sínum Björg býður ungliðum til fundar Verði húsið rifið verði fyrst að óska þess að friðun verði afnumin Sjá meira