Á yfir höfði sér allt að tuttugu ára fangelsi fyrir að brotlenda flugvél af ásetningi Árni Sæberg skrifar 12. maí 2023 10:30 Trevor Jacob skeytti lítið um afdrif flugvélar sinnar þegar hann stökk út úr henni. Skjáskot/Youtube Fallhlífastökkskappinn og samfélagsmiðlastjarnan Trevor Jacob hefur játað að hafa hindrað rannsókn bandarískrar lögreglu með því að eyða sönnunargögnum um brotlendingu flugvélar, sem hann brotlenti af ásetningi.
Trevor Jacob birti myndband á samfélagsmiðlinum Youtube árið 2021 undir titlinum „I crashed my airplane“ eða „Ég brotlenti flugvélinni minni“. Í myndbandinu sést hann stökkva út úr lítilli eins hreyfils flugvél, á meðan hún var enn á flugi, og skilja hana eftir mannlausa. Eðli málsins samkvæmt brotlenti flugvélin. Líkt og hér á landi rannsaka bandarísk flugmálayfirvöld öll flugslys og í tilfelli „slyss“ Jacobs gerðu þau tilraun til þess. Jacob kom hins vegar í veg fyrir það með því að fara á þyrlu á brotlendingarstað og hirða flak flugvélarinnar. Saksóknari í Kaliforníu taldi það brot á lögum, með því að hindra rannsókn yfirvalda. Jacobs hefur játað þau brot sem hann var grunaður um og gert dómsátt við saksóknara. Í dómsáttinni kemur fram að hann hafi tekið myndskeiðið upp í tengslum við auglýsingaherferð fyrir ónefnt fyrirtæki. Í frétt breska ríkisútvarpsins um málið segir að allt að tuttugu ára fangelsisrefsing liggi við þeim brotum sem Jakob hefur játað að hafa framið.
Fréttir af flugi Bandaríkin Mest lesið Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Innlent Vilja leggja réttarríkið til hliðar Erlent Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Erlent Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Innlent Tók málin í eigin hendur og opnar dagforeldravef Innlent Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Erlent Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Erlent Lalli Johns er látinn Innlent Hópsmit á Mánagarði ein „alvarlegasta uppákoma af þessu tagi“ Innlent Fleiri fréttir Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Skammvinnu vopnahléi virðist lokið Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Sovéskt geimfar hrapaði til jarðar eftir misheppnað ferðalag til Venus Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Kínverskir verktakar fá ekki að bora skipagöng í Noregi Vopnahlé í höfn milli Indlands og Pakistans Kim lofar hermenn sína sem börðust í Kúrsk sem hetjur Átökin ná nýjum hæðum Borgarstjóri í Bandaríkjunum handtekinn vegna mótmæla Yfirvöld Mexíkó kæra Google Gamlar nektarmyndir felldu glænýjan þjóðaröryggisráðgjafa Svíþjóðar Gerir Pirro að ríkissaksóknara í DC Bein útsending: Fyrsta messa nýs páfa Býst við að bróðir sinn Leó feti í fótspor Frans Stigmögnunin heldur áfram Hvað vitum við um Leó páfa? Norðmenn undirbúi sig undir möguleg stríðsátök „Þvílík spenna og þvílíkur heiður fyrir landið okkar“ Bíða með að stimpla AfD sem öfgasamtök Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Samþykktu Trump-samninginn einróma Takmörkuð eftirspurn eftir ríkisstjórn með flokki Farage Gera enn árásir með drónum og eldflaugum Sjá meira