Sport

Snæfríður bætti Íslandsmetið í annað sinn í dag

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Snæfríður Sól Jórunnardóttir er búin að bæta eigið Íslandsmet í 100 metra skriðsundi í tvígang í dag.
Snæfríður Sól Jórunnardóttir er búin að bæta eigið Íslandsmet í 100 metra skriðsundi í tvígang í dag. Simone Castrovillari

Snæfríður Sól Jórunnardóttir bætti eigið Íslandsmet í 100 metra skriðsundi þegar hún synti fyrsta sprett í 4x100 metra skriðsundi ís­lensku boðsunds­sveit­ar­inn­ar á 54,97 sek­únd­um á Smáþjóðal­eik­un­um á Möltu. Þetta var í annað sinn í dag sem Snæfríður bætir metið.

Snæfríður hafði fyrr í dag bætt eigið Íslandsmet í 100 metra skriðsundi þegar hún synti á tímanum 55,06 sekúndum og nældi sér um leið í silfurverðlaun í greininni.

Snæfríður og stöllur bættu svo um betur í 4x100 metra skriðsundi þegar íslenska sveitin kom fyrst í mark og nældi sér í gullverðlaun. Sveit­ina skipuðu ásamt Snæfríði Sól þær Jó­hanna Elín Guðmunds­dótt­ir, Vala Dís Cicero og Krist­ín Helga Há­kon­ar­dótt­ir.

Þá unnu þau Eva Margrét Falsdóttir og Birnir Freyr Hálfdánarson bæði til gullverðlauna í 200 metra fjórsundi í dag. Eva Margrét synti á tímanum 2:21,74 og Birnir Freyr á 2:07.08.

Íslenska karlasveitin í 4x100 metra skriðsundi, skipuð þeim Sím­oni Elíasi Statkevicius, Guðmundi Leó Rafns­syni, Ými Sölva­syni og Birni Frey Hálfdánarsyni, vann til silfurverðlauna og Ylfa Lind Kristmannsdóttir vann til silfurverðlauna í 200 metra baksundi.

Þá vann Kristín Helga Hákonardóttir til bronsverðlauna í 200 metra flugsundi þegar hún kom í mark á tímanum 2:25,72.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×