Innlent

Útgerðarmaðurinn hyggst ekki draga kaupin til baka

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Jakubs Polkowski á heimili sínu í Keflavík.
Jakubs Polkowski á heimili sínu í Keflavík. Stöð 2

Formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar segist óska þess að sýslumaður hefði upplýst sig um stöðu ungs manns sem borinn verður út úr skuldlausi húsi sínu á föstudag. Útgerðarmaður sem keypti húsið á þrjár milljónir á nauðungaruppboði ætlar ekki að endurskoða kaupin.

Mál hins 23 ára gamla Jakubs Polkowski hefur vakið gríðarlega athygli síðastliðinn sólarhring. Greint var frá því í Ríkissjónvarpinu í gærkvöldi að hús Jakubs, sem er öryrki og fatlaður eftir læknamistök, hafi verið selt á nauðungaruppboði fyrir aðeins brot af markaðsvirði, eða á þrjár milljónir. 

Hann keypti húsið fyrir bætur sem hann fékk árið 2018 og hefur búið þar síðan með foreldrum sínum og bróður. Engir reikningar vegna reksturs húseignarinnar hafa verið greiddir. Formaður Bæjarráðs Reykjanesbæjar lýsir málinu sem fjölskylduharmleik.

„Ég var að keyra Reykjanesbrautina í gærkvöldi og heyrði þetta í fréttunum og hugsaði: Hver andskotinn er að gerast? Þetta er harmleikur,“ sagði Friðjón Einarsson í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Að óbreyttu verður fjölskyldan borin út á föstudag en Friðjón segir að eina lausnin til að vinda ofan af því sé í samstarfi við þann sem að keypti eignina. 

„Ég er ekkert sérstaklega bjartsýnn á það. Svo þetta eru kannski tvö mál, annars vegar að reyna finna lausn með húsið þeirra og annars vegar að tryggja þeim húsnæði til framtíðar. Og við munum gera það, við munum tryggja búsetu fyrir þau,“ segir hann.

Útgerðarstjóri segist ekkert rangt hafa gert

Sá sem keypti húsið er útgerðarstjóri úr Sandgerði. Þegar fréttastofa náði af honum tali í dag sagðist hann ekki hafa gert neitt rangt, hann hafi einfaldlega mætt á uppboð líkt og hann hafi margoft áður gert. 

Hann segist hafa gert allskonar kaup á uppboðum í gegnum tíðina og sagðist meðal annars hafa keypt sér bát á góðu verði fyrir stuttu.

Aðspurður hvort hann hyggðist draga kaupin til baka í ljósi umfjöllunarinnar var hann ekki á því en vildi að öðru leyti ekki tjá sig mikið um málið. Hann sagði málið þó ekki svo einfalt að hann gæti hætt við kaupin, þá kæmi næsti maður einfaldlega í hans stað.

Fréttastofa sótti Jakub og fjölskyldu heim í dag en að höfðu samráði við lögmann ákvað fjölskyldan að tjá sig ekki frekar um málið að sinni, enda er það á mjög viðkvæmu stigi.


Tengdar fréttir

Skora á kaupandann að hætta við kaupin

Öryrkjabandalag Íslands skorar á sýslumannsembættið á Suðurnesjum og sveitarfélagið Reykjanesbæ að endurskoða ákvörðun sem leiddi til þess að einbýlishús ungs öryrkja var selt tugmilljónum undir markaðsverði á nauðungaruppboði. Þá skora samtökin á kaupanda hússins að hætta við kaupin.

„Mér er bara svo mis­boðið“

Þingmenn og fleiri eru afar ósátt með að bera eigi ungan öryrkja í Keflavík úr einbýlishúsi sínu næstkomandi föstudag vegna vanskila á húsnæðisgjöldum. Sýslumaðurinn á Suðurnesjum er harðlega gagnrýndur fyrir sinn hlut í málinu.

Borinn út eftir að sýslumaður seldi einbýlið á þrjár milljónir

Hús ungs öryrkja í Keflavík, sem metið er á 57 milljónir króna, var selt á nauðungaruppboði sýslumanns á þrjár milljónir vegna vanskila á húsnæðisgjöldum. Hann er nú allslaus og bíður útburðar á föstudag. Vinnubrögð sýslumanns, sem segist aðeins vera að framfylgja lögum, eru harðlega gagnrýnd í ljósi þess að maðurinn virðist ófær um að gæta hagsmuna sinna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×